Sein ustu tvö kvöld hefur lögreglan á höfuðborgarsvæðinu farið inn á 24 veitinga- og skemmtistaði til að fylgja eftir reglum um sóttvarnir, fjöldatakmörkun og 2 metra reglunni.Af þessum 24 veitinga- og skemmtistöðum voru 15 staðir sem ekki voru að framfylgja sóttvarnarreglum þannig að viðunandi væri. Þetta kemur fram í dagbók lögreglu, þar segir:
„Sér í lagi var fjöldi gesta á stöðunum oft slíkur að alls ekki var unnt að tryggja tveggja metra bil milli manna og sum staðar var ekki þverfótað vegna fjöldi fólks, bæði inni á stöðunum og utan við þá. Eigendum og forsvarsmönnum var veitt tiltal eftir atvikum og þeim leiðbeint um hvað betur mætti fara. Lögreglan lítur þetta alvarlegum augum í ljósi aðstæðna og því er til skoðunar að grípa til hertra aðgerða, þar með talið beitingu sekta, til að sporna gegn brotum á sóttvarnarreglum.“
Þá kemur fram að tveimur veitingastöðum hafi verið lokað vegna þess að leyfi voru ekki í lagi.