Þrjú innanlandssmit af COVID-19 greindust í gær og nú eru 112 manns í einangrun með virkt smit. Tveir eru á sjúkrahúsi vegna veirunnar, þar af einn á gjörgæslu. Tvö virk smit greindust við landamæraskimun í gær og tveir bíða eftir niðurstöðu úr mótefnamælingu.
581 sýni voru greind á sýkla- og veirufræðideild Landspítalans í gær og voru 2.430 sýni greind við landamæraskimun.
Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og embætti landlæknis boða til upplýsingafundar klukkan 14:00 í dag. Þar munu Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn og Alma Möller, landlæknir fara yfir stöðu mála, en gestur fundarins verður Vilhjálmur Hans Vilhjálmsson, formaður Hinsegin daga.