Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra kynnti í dag nýjar aðgerðir ríkisstjórnarinnar varðandi skimanir á landamærum fyrir COVID-19, á blaðamannafundi í Safnahúsinu við Hverfisgötu. Fulltrúar frá almannavörnum voru einnig á fundinum ásamt blaðamönnum.
Ríkisstjórnin lauk fundi sínum um stöðu mála í heimsfaraldrinum skömmu fyrir blaðamannafundinn. Katrín benti í að faraldurinn væri í vexti um heim allan. Ríkisstjórnin telur útilokað að lofa því að hægt sé að losna við veiruna. Hins vegar hafi það alltaf verið markmið að tryggja sem best heilbrigði landsmanna, fylgja leiðbeiningum almannavarna og tryggja um leið hag landsmanna.
Þegar skimanir hófust á landamærunum var það gert til að opna landið með varfærnum hætti. Nú þykir ástæða til að byggja ofan á það fyrirkomulag sem hefur verið notast við, sagði Katrín.
Katrín telur að sú aðgerð að skima á landamærum hafi tekist mjög vel. „Við skynjum það að þessi aðferðafræði er að vekja athygli um allan heim.“
Eftir að hafa farið yfir valkosti sem sóttvarnalæknir læknir lagði fram og uppfært þá hagfræðilegu greiningu sem var unnin í aðdraganda aðgerðanna er niðurstaðan að frá 19. ágúst verða allir komufarþegar skimaðir tvisvar. Fyrri skimun verður á landamærum og tekur þá við sóttkví í 4-5 daga, síðan er seinni sýnataka.
Seinni sýnataka verður gjaldfrjáls eins og verið hefur en fyrri sýnataka kostar 11.000 ef greitt er á staðnum og 9.000 ef greitt er fyrirfram.