fbpx
Þriðjudagur 23.apríl 2024
Fréttir

„Hversu mörg mannslíf munu sóttvarnaraðgerðir og dýpkun efnahagslægðarinnar sem þær valda kosta?“

Ágúst Borgþór Sverrisson
Föstudaginn 14. ágúst 2020 13:00

Aðsend mynd

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Þetta eru 23 mjög hvassar spurningar til yfirvalda sem ekki hefur verið svarað áður og 55 manns hafa skrifað undir yfirlýsinguna,“ segir Jóhannes Loftsson, sem stofnað hefur hreyfingu er vill veita stjórnvöldum aðhald varðandi aðgerðir gegn kórónuveirufaraldrinum.

Jóhannes er formaður Frjálshyggjufélagsins og hefur vakið athygli fyrir skrif sín gegn aðgerðum stjórnvalda sem hann telur allt of harðar. Skrif Jóhannesar hafa verið umdeild og fengið harða gagnrýni.

Jóhannes boðaði andóf gegn stjórnvöldum fyrir skömmu síðan en núna er ekki heppilegur tími fyrir fjöldamótmæli og fer hreyfingin því þessa leið. Að sögn Jóhannesar starfar hreyfingin í lokuðum Facebook-hópi en tilkynningu hreyfingarinnar og hinar 23 gagnrýnu spurningar til stjórnvalda er að finna á opnu vefsvæði, covidspyrnan.is.

Í tilkynningunni segir:

„Nú þegar þjóðin þarf mest á fjórða valdinu að halda er sem fjölmiðlar hafi sofnað á verðinum og gengið í klapplið yfirvalda. Eftir 100 stöðufundi, þrjár fálkaorður, vænan skammt af sjálfshóli yfir því sem Kári gerði ásamt skítkasti í Svía liggur nú loks fyrir hvað ávannst: Nákvæmlega ekkert. Heilbrigðisyfirvöld segja nú að ár sé í bóluefni ef það yfir höfuð finnst. Mörg réttindi okkar sem eiga að vera varin í stjórnarskrá eru farin og við blasir algjört efnahagshrun ofan í þá heimskreppu sem fram undan er. Stefnuleysi einkennir stefnu stjórnvalda og án gagnrýniradda hafa þau flúið þá ábyrgð sem þau voru kosin til að höndla.

Við erum hópur fólks sem viljum viðspyrnu gegn ábyrgðarleysinu og erum með spurningar til yfirvalda.“

Hreyfingin virðist meðal annars hafa áhyggjur af því að stjórnvöld ætli að þvinga almenning í bólusetningu þegar bóluefni finnst gegn COVID-19. Þá er spurt hve mörg mannslíf sóttvarnaraðgerðir  og dýpkun efnahagslægðarinnar sem þær valda muni kosta. Bent er á að í vor hafi 5.500 Íslendingar smitast af COVID-19 og þar af hafi 9 látist. Dánarhlutfallið sé því aðeins 0,16%.

Þá segir að ef svör stjórnvalda við spurningunum berast verði þau birt á vefsíðunni.

Spurningar hreyfingarinnar og nöfn þeirra sem skrá sig undir yfirlýsinguna eru hér að neðan:

„HVER ER ENDASTÖÐIN?

1) Í covidbylgjunni í vor er talið að um 5500 Íslendingar hafi smitast og þar af létust 9. Dánartíðnin var því 0.16% og fer lækkandi með bættum meðferðarúrræðum. Veturinn 2014-2015 smituðust í Bandaríkjunum 30 milljón manns af flensu og þar af létust 51 þúsund. Dánartíðnin var því 0.17%. Hversu lág þarf dánartíðnin af covid að verða áður en beitingu sóttvarnarlaga verður hætt?

2) Í hversu mörg ár verður sóttvarnarlögum beitt ef bóluefni með nægjanlega virkni finnst ekki eða ef það reynist hættulegt?

3) Munu stjórnvöld þvinga fólk í bólusetningu og hvernig geta þau tryggt að bóluefni þróað á methraða sé ekki hættulegt?

HVAÐ MUN COVIDÓVISSUFERÐIN KOSTA?

Óvíst er að nothæft bóluefni finnist en ef ár er í bóluefni, mun næsta ferðasumar líka tapast og við stefnum í dýpstu efnahagslægð á sögulegum tíma.

4) Hversu mikið mun hagvöxturinn minnka og hvað mun það kosta ríkissjóð?

5) Hversu mörg fyrirtæki munu fara á hausinn og hversu mörg störf munu tapast?

6) Hversu mörg ár verðum við að vinna okkur úr kreppunni og hve mikið verður skorið niður í heilbrigðisþjónustu?

7) Hversu mörg mannslíf munu sóttvarnaraðgerðir og dýpkun efnahagslægðarinnar sem þær valda kosta?

8) Hafa áhrif sóttvarnaraðgerða á geðheilbrigði barna og brottfalls úr skólum verið metin?

9) Hefur sjálfsmorðum fjölgað síðan covid byrjaði?

10) Forsenda fyrir skerðingu atvinnufrelsis, ferðafrelsis og samkomufrelsis er að almannahagur liggi við. Hefur skaðinn af beitingu sóttvarnarlaga verið metinn til að unnt sé að meta almannahagsmuni?

11) Ef síðar kemur í ljós að skerðing atvinnufrelsis, ferðafrelsis og samkomufrelsis hafi verið gagnslítil aðgerð sem aðeins frestaði hinu óumflýjanlega eins Johan Giesecke hefur bent á, munu yfirvöld þá borga bætur þeim fyrirtækjum og einstaklingum sem urðu fyrir tjóni eða misstu vinnuna vegna aðgerðanna? Verður stofnaður sérstakur bótasjóður fyrir slíkar bætur?

AÐRAR SPURNINGAR

Eitt stærsta vandamálið við að meta neikvæðar afleiðingar af sóttvarnaraðgerðum yfirvalda er að rannsóknaraðilinn er líka gerandinn. Mikil þörf er því á að óháður (erlendur) aðili meti skaðann.

12) Hversu mörg mannslíf hafa sóttvarnaraðgerðir kostað með óbeinum hætti?

13) Hefur verið metið hvort að skaðleg áhrif sóttvarnaraðgerða hafi óbeint átt þátt í andláti covidsjúklinga? Hversu margir voru t.d. það langt leiddir þegar þeir loks þorðu að leita sér aðstoðar að þeim varð ekki bjargað? Hversu margir af þeim sem smituðust í sóttkví dóu úr covid?

14) Af hverju gildir 1 m regla milli smitaðra í einangrun og sambýlismanna þeirra, á meðan 2 m reglu er framfylgt milli heilbrigðs fólks af svo mikilli hörku að veitingastaðir hafa þurft að loka?

15) Hversu margar af læknisaðgerðum sem var frestað í fyrstu covidbylgjunni hefði verið hægt að flytja til einkaaðila og hversu margir af sjúklingunum sem lentu í þessu eru í aukinni lífshættu í dag vegna frestunar á aðgerðum eins og krabbameinsskimun, hjartarannsóknum eða sambærilegu?

16) Hversu lengi er hægt að halda skólum í fjarkennslu?

17) Er gerður greinamunur á skilgreiningu covid andláts hérlendis eftir því hvort að fólk deyr úr covid-19 eða með covid-19 veiruna í sér? Ef svo er hvernig er sú skipting?

18) Hvað var versta flensuár frá síðustu aldamótum? Hvað dóu margir úr flensu það ár og hvað voru margir sem dóu af öðrum orsökum en með flensuveiruna í sér?

19) Við þekkjum mörg til ýmiss fólks innan heilbrigðisþjónustunnar sem veigrar sér við að koma fram og gagnrýna opinberlega stefnu yfirvalda af ótta við að skaða starfsframa sinn. Hvað hafa yfirvöld gert til að tryggja að slík ritskoðunarstefna eigi sér ekki stað á opinberum vinnustað?

20) Eru blaðamönnum á stöðufundum vegna Covid settar einhverjar reglur um hvað má spyrja?

21) Hvort hefur meira vægi hjá stjórnvöldum; öflugt og blómlegt mannlíf og efnahagslegur raunveruleiki eða kapphlaup við að bjarga mannslífum um stundarsakir með því að hliðra covidbylgjunni þar til við getum ekki meir og allt tapast?

22) Hvenær var ákveðið að fara að hliðra ferlinum í stað þess að jafna út ferilinn eins og alþjóðaheilbrigðisstofnunin lagði í upphafi til? Hverjir tóku þá ákvörðun?

SÆNSKA LEIÐIN

Hjarðónæmi í Svíþjóð er í dag það mikið að þeir virðast komnir í gegnum covid á sama tíma og haustbylgjan er að fara af stað annars staðar. Þeir hafa dýrmæta reynslu sem getur nýst öllum.

Ein lexían er t.d. að sambærilegt hjarðónæmi er mun nær en yfirvöld hafa áður talið.

23) Hafa yfirvöld leitað ráðgjafar hjá sænskum sérfræðingum til að eiga góðan valmöguleika út úr covid-krísunni sem hlífir efnahagslífinu um leið og þeir viðkvæmustu eru varðir?

Virðingarfyllst,

Coviðspyrnan

 

Jóhannes Loftsson

Trausti Eysteins

Sylvía Magnúsdóttir

Halldór Fannar Sigurgeirsson

Linda Jóhannsdóttir

Dóra Sigurðardóttir

Þórarinn Friðriksson

Helgi Örn Viggósson

Tryggvi Pétursson

Sólveig Sigurðardóttir

Óli Ólafs Olafsson

Ragnar Unnarsson

Kolbrún Þóra Sverrisdóttir

Þórdís Björk Sigurþórsdóttir

Pálmi Einarsson

Elsabet Sigurðardóttir

Svava Liv Edgarsdóttir

Sólrún Bragadóttir

Arnar Valgarðsson

Kristján Erlingsson

Einar Sigurjónsson

Eldur Ísidór Deville

Erla Ólafsdóttir

Einar Gunnar Birgisson

Anna Lopatinskaya

Agnes Thorsteins

Gunnar Már Gunnarsson

Þórður O. Björnsson

Arni Thor Thordarson

Kolbrún Karlsdóttir

Guðjón Halldór Höskuldsson

Inga G. Halldórsdóttir

Ingvi Arnar Halldórsson

Jón Þór Baldvinsson

Þórarinn Einarsson

Páll Heimir Einarsson

Grace Achieng

Iva Adrichem

Jón Ingi Ágústsson

Helga Björk Einarsdóttir

Guðni Rafnsson

Kári Þór Samúelsson

Somaya Ellertsdóttir

Heimir Ólafsson

Guðmundur Franklín Jónsson

Axel Pétur Axelsson

Arnþór Birgisson

Jóhanna D Harðardóttir

Unnur Brynjólfsdóttir

Tara Rut Hilmarsdóttir

Svandís Sigurgeirsdóttir

Eva Karen Axelsdóttir

Ragna Erlendsdóttir

Vilborg Hjaltested

Karl F. Bragason

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Manndráp í Kiðjabergi – Mennirnir voru að byggja sumarbústað

Manndráp í Kiðjabergi – Mennirnir voru að byggja sumarbústað
Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Fjallar um fordóma gegn Baldri – „Hafa litlu mennirnir fengið háværari rödd?“

Fjallar um fordóma gegn Baldri – „Hafa litlu mennirnir fengið háværari rödd?“
Fréttir
Í gær

Jón Magnús um þráhyggju virkra í athugasemdum – Bólusetningum kennt um allt sem úrskeiðis fer

Jón Magnús um þráhyggju virkra í athugasemdum – Bólusetningum kennt um allt sem úrskeiðis fer
Fréttir
Í gær

Sundlaugargestir æfir yfir fyrirhuguðum breytingum: „Notið peningana í þarfari hluti“

Sundlaugargestir æfir yfir fyrirhuguðum breytingum: „Notið peningana í þarfari hluti“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Siggi hakkari fluttur til Danmerkur og veitti Ekstrabladet viðtal – Mikið gert úr njósnum en lítið úr kynferðisbrotunum

Siggi hakkari fluttur til Danmerkur og veitti Ekstrabladet viðtal – Mikið gert úr njósnum en lítið úr kynferðisbrotunum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Lögmaður fór dagavillt og því þarf að byrja allt málið upp á nýtt

Lögmaður fór dagavillt og því þarf að byrja allt málið upp á nýtt