Á neyðarfundi Reykjavíkurborgar í morgun var ákveðið að aflýsa Menningarnótt sem átti að halda í þessum mánuði. Þetta kemur fram í tilkynningu.
„Þetta er í fyrsta sinn frá árinu 1996 sem Menningarnótt fer ekki fram en hún er haldin í miðborginni fyrsta laugardag eftir afmæli Reykjavíkurborgar, þann 18. ágúst. Hefur hátíðin vaxið ár frá ári og verið afar fjölsótt“
Áður hafði verið stefnt að því að dreifa dagskrá Menningarnætur 2020 yfir tíu daga tímabil en í ljósi hertari samkomureglna þótti rétt að aflýsa henni.
„Við höfum verið að skoða ólíkar útfærslur á hátíðinni en í ljósi þróunar síðustu daga og vikna töldum við réttast að aflýsa Menningarnótt í ár. Þetta er auðvitað leitt en við verðum öll að sýna ábyrgð og lágmarka hættu á smitum í samfélaginu,“ er haft eftir borgarstjóra, Degi B. Eggertssyni í tilkynningu.