Karlmaður á sjötugsaldri sem talin er tengjast brunanum í Bræðraborgarstíg 1 var í morgun í Héraðsdómi Reykjavíkur úrskurðaður í sjö daga áframhaldandi gæsluvarðhald á grundvelli almannahagsmuna. Þetta kemur fram í tilkynningu lögreglu.
Þetta var gert að kröfu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í þágu rannsóknar hennar á brunanum sem átti sér stað í síðustu viku.
Í tilkynningunni segir að rannsókninni miði vel þó að ekki sé hægt að tjá sig um málið að svo stöddu.