Anton Máni Svansson, kvikmyndagerðarmaður birti fyrir skömmu færslu á Facebook-síðu sinni, þar sem svarar hann gagnrýni Guðmundar Þórs Kárasonar á hendur sér og samstarfsmanni sínum Guðmundi Arnar leikstjóra.
Anton og Guðmundur Arnar eru að vinna að gerð kvikmyndar þar sem að börn eru í mikilvægu hlutverki, en nokkur börn höfðu verið fengin til sérstakra æfinga til þess að leika í myndinni. Þeirra á meðal var sonur Guðmundar Þórs, sem fékk símtal í gær, þar sem honum var tilkynnt að hann yrði ekki hluti af myndinni.
Guðmundur Þór, sem sjálfur er kvikmyndagerðarmaður, gagnrýndi þessa framkomu þeirra harðlega í dag, en líkt og áður segir hefur Anton nú svarað gagnrýninni.
„Vegna Facebook færslu þar sem ég og samstarfsmaður minn, Guðmundur Arnar leikstjóri, vorum gagnrýndir fyrir okkar vinnubrögð og framkomu;
Ég vonast til að fá tækifæri til að klára samtal mitt við foreldra drengsins, en eins og ég sagði við föður hans þegar ákvörðunin var tekin þá hyggjumst við að sjálfsögðu bæta syni hans það upp að hafa ekki haldið áfram í þessu ferli og viljum styðja við hann með öllum mögulegum leiðum.
Ég vil nefna það sérstaklega að við höfum mikla trú á syni þeirra og teljum hann eiga bjarta framtíð fyrir sér. Þessi ákvörðun snýr að engu leyti að hæfni hans heldur byggist hún einfaldlega á því að umrætt hlutverk hentaði honum ekki.“
Anton minnist á að þeir hafi áður unnið með ungmennum og tekur fram að sonur Guðmundar Þórs sé mjög hæfileikaríkur. Hann segir að það hafi komið skýrt fram að einhvern tímann í ferlinu myndi koma í ljós að hlutverkið hentaði ekki.
„Við höfum áður unnið með ungmennum og það með góðum árangri. Við gerum alltaf okkar allra besta til að vinna vel og vandlega með þeim þar sem við gerum okkur grein fyrir þeirri miklu ábyrgð sem fylgir því að þjálfa upp og vinna með ungu fólki.
Við upphaf undirbúnings á nýrri mynd okkar, áður en eiginleg vinna í efninu sjálfu fór af stað, var þeim hópi einstaklinga sem valdir voru úr prufum boðið á almennt leiklistarnámskeið og sérstaka leikþjálfun.
Skýrt var tekið fram bæði við foreldra og alla ungu leikarana að sú staða gæti vel komið upp, jafnvel seint í ferlinu, að hlutverk sem æft væri fyrir myndi ekki henta þeim að lokum. Tekið skal fram að slík ákvörðun segir ekkert um hæfileika viðkomandi einstaklings, enda eru öll þau ungmenni sem boðið er að fara inn í æfingaferli af þessu tagi mjög hæfileikarík.Að lokum langar mig að taka fram að þegar sú erfiða ákvörðun er tekin að láta einhvern hætta í leikþjálfun fyrir hlutverk er það aldrei gert nema að vel ígrunduðu máli og að sá einstaklingur hafi fengið það tækifæri sem hann á skilið.
Ég biðla til allra að treysta því að þetta mál er ekki léttmeti fyrir okkur og að við vinnum hörðum höndum að því að leysa þetta á sem farsælastan hátt með foreldrum drengsins.“