Í blaðinu The Namibian er staðhæft að Samherji hafi styrkt stjórnarflokkinn Swapo í Namibíu í gegnum dótturfyrirtæki sitt í Namibíu. Í frétt blaðsins í dag er sagt að gögn sanni þessar greiðslur.
Formaður Swapo og forseti Namibíu, Hage Geingob, hélt því fram í yfirlýsingu í gær að flokkurinn hefði aldrei fengið neina styrki frá Samherja. Hann hvatti þá sem halda öðru fram að kanna bókhaldsgögn flokksins.
Samherji er sagður hafa innt þessar greiðslur af hendi í gegnum dótturfyrirtæki í Namibíu. Lögmannastofa hafi greitt inn á reikning Swapo árið 2017, nokkrum mánuðum fyrir landsfund flokksins. Fjármunirnir eru sagðir hafa verið notaðir til að fjármagna kosningabaráttu flokksins, að sögn Willem Olivier, fulltrúa spillingarlögreglunnar ACC – Anti-Corruption Comission. Upphæðin er 17,5 milljónir Namibíudollarar sem eru andvirði um 140 milljóna íslenskra króna.
Réttarhöld standa yfir í Namibíu yfir sex sakborningum sem sakaðir eru um að hafa þegið mútur frá Samherja gegn því að tryggja fyrirtækinu kvóta í hrossamakríl. Meðal þeirra eru Bernhard Esau, fyrrverandi sjávarútvegsráðherra, en hann hrökklaðist úr embætti vegna málsins. Spillingalögreglan ACC vitnaði um það í réttarhöldunum að hann ætti landareign sem keypt væri fyrir mútuféð. Fyrir rétti kannaðist ráðherrann ekki við að eiga jörðina.
Sjá umfjöllun Kveiks um Samherjaskjölin