Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra mætti til Þingvalla til minningarathafnar á hækjum. Forsætisráðherra hafði boðið ríkisstjórnina og þingheim til athafnarinnar þar sem þess var minnst að 50 ár eru liðin síðan Bjarni Benediktsson og eiginkona hans Sigríður Björnsdóttir ásamt fjögurra ára barnabarni sínu létust í eldsvoða. Brann þá ráðherrabústaðurinn á Þingvöllum þangað sem forsætisráðherrahjónin höfðu farið til að dvelja eina nótt ásamt barnabarni sínu.
Að sögn Katrínar hefur hún fundið fyrir verk í fætinum frá því að hún fór út að hlaupa fyrir þremur vikum. Við segulómsskoðun kom svo í ljós að hún er lærbrotin.