Breskur maður sem lét dólgslega í flugvél EasyJet á leið til Íslands og greip meðal annars í rassinn á flugþjóni og kallaði hann homma hefur verið dæmdur í sex mánaða fangelsi. Þetta kemur fram á vef Hringbrautar sem styðst við frétt Bury Times.
Maðurinn starfaði á Íslandi sem togarasjómaður og er sagður hafa misst starfið í kjölfar atviksins. Hann er 51 árs gamall.
Maðurinn brást illa við því að fá ekki að kaupa meira áfengi um borð eftir að hann hafði drukkið þrjá bjóra. Í frétt Hringbrautar segir:
„Flugþjónn um borð er sagður hafa varað manninn við að þessi hegðun væri ekki ásættanleg um borð í vélinni. Þegar flugþjónninn sneri sér við greip farþeginn í rassinn á honum og kreisti af alefli. Flugþjónninn sagði manninum að lögregla yrði látin vita af málinu en þrátt fyrir það hélt hann áreitinu áfram. Sagði hann hátt, fyrir framan farþega, börn þar á meðal, að flugþjónninn væri samkynhneigður áður en hann öskraði: „Þú ert ekki breskur ef þú heldur að þetta sé kynferðisbrot.“
Atvikið átti sér stað þann 3. október 2019.
Auk þess að fá sex mánaða fangelsi lendir maðurinn á skrá yfir dæmda kynferðisbrotamenn vegna síns grófa framferðis gegn flugþjóninum. Hann var handtekinn eftir að flugvélin lenti á Íslandi.