fbpx
Laugardagur 20.apríl 2024
Fréttir

Svanur ver Samherjabörnin – „Hættum að líta til sjávarútvegsins með öfundaraugum“

Jón Þór Stefánsson
Mánudaginn 25. maí 2020 21:15

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Svanur Guðmundsson, Sjávarútvegsfræðingur og framkvæmdastjóri Bláa Hagkerfisins skrifaði pistil sem birtist á Vísi í dag. Þar ræddi hann erfðir sjávarútveg og málið sem tengir það tvennt saman. Undanfarna daga hefur mikið verið rætt um það að börn eigenda Samherja hafi fengið hlut foreldra sinna framseldan til sín.

Málið hefur vakið mikla athygli og þótt afar umdeilt. Svanur telur það eðlilegt að arfur færist á milli kynslóða, en segist þó skilja að málið sé umdeilt.

„Það er lífsins gangur að ein kynslóð tekur við af annarri. Allt er breytingum undirorpið og flest reynum við að undirbúa okkur sem best, hvort sem við erum að yfirgefa þennan heim eða taka hann í arf. Í því réttarríki sem við lifum núna hefur löggjafinn nokkurn viðbúnað til að tryggja að allt fari eftir settum reglum þó að kaldhæðnir menn hafi stundum á orði að ríkið sé fyrsti syrgjandinn þegar kemur að uppgjöri arfs. Þannig hefur skapast hefð fyrir því að þegar verðmæti fara á milli kynslóða mætir ríkisvaldið og það mun mæta aftur næst þegar sami arfur gengur milli næstu kynslóða. Ef arfurinn ávaxtast lítið þá mun allt að endingu hverfa til ríkisins. Þannig má segja að það sé erfingi allra erfingja enda aðeins tvennt öruggt í lífinu; skatturinn og dauðinn.

Við getum haft skoðun á því hve sanngjarnt þetta kerfi er en hér hefur myndast sátt um að hafa lagalega umgjörð um erfðamál sem allir Íslendingar þurfa að gangast undir. Nú hefur verið upplýst að eigendur eins stærsta sjávarútvegsfyrirtækis landsins hafa ákveðið að færa eignarhlut sinn í fyrirtækinu til afkomenda sinna. Það er gert fyrir opnum tjöldum og öllum reglum fylgt þannig að ríkiserfinginn fái nú örugglega sinn hlut, sem hann mun líka fá næst og svo aftur koll af kolli eins og áður var rakið. Sanngjarnt? Já, um það má deila en þeir sem hafa skilað miklu æviverki og farnast vel skila meiri frá sér til næstu kynslóða. Sumir geta glaðst yfir því að skuldir erfast ekki.“

„Mér er spurn og það fleirum hvort þjóðkirkjunni finnist það sæmandi?“

Svanur segir að Samherji hafi sín réttindi og skyldur og að nýjar kynslóðir muni þurfa að takast á við þær, rétt eins og fyrirrennarar sínir.

„Eins og skýrt hefur komið fram þá er verið að færa hluti í atvinnufyrirtæki, með öllum réttindum og skyldum, milli kynslóða. Aðgerðin nær eingöngu til hlutabréfa Samherja. Aflamarkskerfið hefur ekkert með þetta fyrirkomulag að gera, fyrirtækið sem hér um ræðir hefur þar réttindi og skyldur eins og á svo mörgum öðrum sviðum og mun uppfylla þau áfram. Fyrir þau veiðiréttindi sem fyrirtækið hefur aðgang að verður að greiða veiðileyfagjald, rétt eins og á við um aðra skatta sem þarf að greiða af starfseminni. Það sem var greitt áður, verður greitt áfram, óháð eignarhaldi. Eina breytingin er að ríkissjóður mun fá mikla fjármuni til sín vegna fyrirframgreidds arfs.“

Þá ræddi Svanur orð Arnar Bárðar Jónssonar, fyrrverandi prests í Neskirkju sem gagnrýndi það að Samherjabörnin fengju fyrirtækið í hendurnar sí svona.

„Þessi umræða í kjölfar kynslóðaskipta Samherja minnir hins vegar á hve umræðan um sjávarútveginn getur orðið undarleg. Einn aflagður prestur komst í pontu og var útvarpaður. Þar náði hann að fordæma að börn fengju arf eftir foreldra sína. Í ræðu sinni lagði hann áherslu á þá skoðun sína að á alþingi væru þjófar. Hafði presturinn verið virkur í Frjálslynda flokknum svo og í aflögðu stjórnlagaráði. Mér er spurn og það fleirum hvort þjóðkirkjunni finnist það sæmandi að prestar saki samborgara sína um glæpi úr prédikunarstóli.“

Við höfum því öfundsverð tækifæri

Svanur telur að Íslendingar eigi að vera stoltir af sjávarútveginum og hætta að líta á hann með öfundaraugum.

„Við eigum að vera stolt af okkar sjávarútvegi og eigum að standa saman að því að gera þar enn betur. Hættum að líta til sjávarútvegsins með öfundaraugum og gleðjumst yfir færsæld hans og styrk enda mikilvægt fyrir hag allrar þjóðarinnar að sjávarútvegsfyrirtækin séu vel rekin og haldi áfram að þróast.

Hafið þekur ríflega sjö tíundu hluta jarðarinnar og flestar þjóðir sem búa við haf reka sinn sjávarútveg á ófullkominn og ósjálfbæran hátt. Ofveiði, mengun og sóun er oft fylgifiskur þeirra stefnu en hér á landi höfum við forskrift sem getur gagnast vel öðrum þjóðum. Við höfum því öfundsverð tækifæri til þess að stefna útávið með okkar fiskveiðistjórnunarkerfi og okkar reynslu af því að reka sjávarútveg með hagkvæmum hætti. Það er nægt pláss fyrir alla og þeir sem kvarta undan því að komst ekki í útgerð í hinum stóra heimi geta það. Allir þeir sem hingað til hafa viljað breyta einhverju gefst tækifæri núna til að breyta heiminum. Hver er með?“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Hvalur sprakk í tætlur

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Þorgils vill erfðafjárskattinn burt: „Einhver ranglátasti skattur sem lagður er á í dag“

Þorgils vill erfðafjárskattinn burt: „Einhver ranglátasti skattur sem lagður er á í dag“
Fréttir
Í gær

Ástþór hvetur fólk til að passa sig á þessu: Ævintýrið getur fljótt breyst í martröð

Ástþór hvetur fólk til að passa sig á þessu: Ævintýrið getur fljótt breyst í martröð
Fréttir
Í gær

Siggi stormur óvenju bjartsýnn varðandi sumarið – „Ég er eiginlega í sjöunda himni yfir þessu”

Siggi stormur óvenju bjartsýnn varðandi sumarið – „Ég er eiginlega í sjöunda himni yfir þessu”
Fréttir
Í gær

Flassari fyrir dóm – Sakaður um að hafa sýnt af sér ósiðlegt og lostugt athæfi

Flassari fyrir dóm – Sakaður um að hafa sýnt af sér ósiðlegt og lostugt athæfi
Fréttir
Í gær

Ósátt við myndatöku af hnúajárni og „neyslupokum“ en fær hvorki bætur né afslátt af húsaleigunni

Ósátt við myndatöku af hnúajárni og „neyslupokum“ en fær hvorki bætur né afslátt af húsaleigunni
Fréttir
Í gær

Alræmdur glæpamaður laus undan bagga fortíðar í augum dómara -„Ég skal berja og lemja þig alveg eins og harðfisk“

Alræmdur glæpamaður laus undan bagga fortíðar í augum dómara -„Ég skal berja og lemja þig alveg eins og harðfisk“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

„Grípa margir til þeirra örþrifaráða að flýta fyrir eigin dauða“

„Grípa margir til þeirra örþrifaráða að flýta fyrir eigin dauða“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Guðlaugur Þór leiðréttir útbreiddan misskilning: „Þrátt fyr­ir þessa staðreynd flýg­ur sag­an áfram“

Guðlaugur Þór leiðréttir útbreiddan misskilning: „Þrátt fyr­ir þessa staðreynd flýg­ur sag­an áfram“