Nýverið var greint frá því að kona á sextugsaldri hefði fundist látinn í heimahúsi í Sandgerði og væri andlátið rannsakað sem sakamál. Vegna fjölda fyrirspurna hefur lögregla gefið út frekari upplýsingar um málið.
Tilkynning barst frá ættingja konunnar þann 28. mars. Í tilkynningu var tilkynnt að konan væri látin. Rannsóknarlögreglumaður fór ásamt lækni og presti á staðinn og benti ekkert á vettvangi til saknæmrar háttsemi og sömuleiðis sáust engin slík merki í líkskoðun á sjúkrastofnun. Þann 31. mars barst lögreglu niðurstaða réttarmeinafræðings um andlátið. Niðurstaða réttarmeinafræðings var þess efnis að sterkur grunur léki á að andlátið hefði borið að með saknæmum hætti og í kjölfarið var karlmaður á sextugsaldri handtekinn vegna rannsóknar á málinu. Hann hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald til 8. apríl.