Glacier and Fries er fyrsti snjallbar landsins en hann opnaði nýverið í miðborg Reykjavíkur, nánar tiltekið Hafnartorgi. Staðurinn er meðal annars mannaður af vélmennum sem sinna hlutverki barþjóna og hrista kokteila ofan í gesti staðarins. 135 mismunandi kokteilar eru meðal þess sem vélmennin tvö geta hrist en þau hafa hlotið nöfnin Flóki og Rganar.
Gestir geta sjálfir afgreitt sig með því að panta í gegnum skjá á staðnum og velja þar af matseðli. Matseðilinn saman stendur meðal annars af allskyns framandi frönskum kartöflum með áleggi, kolablönduðum kúluís og skartgripum svo fátt eitt sé nefnt. Hugmyndaflugið hefur greinilega ráðið ríkjum við samsetningu matseðilsins og húmorinn er ekki skilinn eftir.
Hægt er að panta sér kokteilinn F**K COVED sem samanstendur meðal annars af öskublönduðu rommi og súkkulaði hrískúlum. Gullflögur eru einnig áberandi á staðnum en þær er meðal annars að finna í niðusoðnum fisk sem framreiddur er í smart dósum og ofan á kaffi. Einnig er hægt að panta sér smakk af sterku áfengi sem staðurinn framleiðir sjálfur í sprautuformi en þess má geta að nánast allt á staðnum er framleitt undir merkjum hans svo sem tonic, vatn, áfengi og fiskur.
https://www.facebook.com/glacierfire.is/videos/2586195411657577/?epa=SEARCH_BOX
Staðurinn er vægast sagt upplifun fyrir öll skilningarvit en þar er einnig að finna vélhund sem hægt er að leika við og þrívídda prentara sem mun á seinni stigum staðarins prenta mat en sem stendur er það mannshöndinn sem framleiðis kræsingarnar á meðan vélmennin hrista kokteila. Kokteilarnir eru ívið ódýrari en gengur og gerist í Reykjavík en almennt verð á vinsælum kokteilum er oft um 2200 krónur. Sem dæmi má nefna að COVID kokteilinn kostar 1625 krónur en allir drykkir eru framreiddir í plastglösum sem er vissulega nokkur bömmer.