Stjórnendur hjá kaffihúskeðjunni og kaffiframleiðslunni Te og kaffi ákáðu í morgun að loka öllum kaffihúsum keðjunnar frá og með morgundeginum. Starfsfólk fékk bréf um þetta upp úr klukkan 11 í morgun.
Halldór Guðmundsson, framkvæmdastjóri kaffihúsanna, segir í samtali við DV að engum verði sagt upp störfum vegna þessa en sumir muni þurfa að fara í skert starfshlutfall. „Við verndum störfin og fólkið okkar. Aðgerðir ríkisstjórnarinnar vegna faraldursins henta okkur líka að ýmsu leyti,“ segir Halldór.
Te og kaffi rekur alls níu kaffihús, flest á höfuðborgarsvæðinu.
Te og kaffi eftir birt eftirfarandi tilkynningu vegna málsins:
Kæru viðskiptavinir ♥️
höfum tekið þá erfiðu ákvörðun að loka öllum okkar kaffihúsum tímabundið vegna útbreiðslu Covid-19 í okkar samfélagi. Frá og með þriðjudeginum
24. Mars verða öll okkar kaffihús lokuð og þangað til við teljum óhætt að opna þau aftur.
Þetta
er ekki auðveld ákvörðun að taka en er fyrst og fremst tekin með velferð okkar starfsfólks og viðskiptavina að leiðarljósi.
Við munum aftur á móti halda kaffibrennslunni okkar gangandi og sjá til þess að hillur matvöruverslana verði áfram fullar af okkar frábæra kaffi og tei.
Þetta er tímabundið ástand. Við hlökkum til að sjá ykkar öll aftur þegar þetta er afstaðið.
Hugsið um ykkar nánustu ástvini, fylgið fyrirmælum yfirvalda og farið vel með ykkur ♥️
Starfsfólk Te & Kaffi