fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Fréttir

Frosti segir lækna vera mjög uggandi í opnu bréfi til Katrínar – „Er það bara ásættanlegt?“

Ritstjórn DV
Fimmtudaginn 19. mars 2020 18:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Frosti Sigurjónsson, fyrrverandi þingmaður Framsóknarflokksins, hefur vakið mikla athygli undanfarið fyrir ummæli sín varðandi aðgerðir Íslands í COVID-19 faraldrinum. Frosti hefur meðal annars gagnrýnt störf Þórólfs Guðnasonar sóttvarnarlæknis harðlega en nú sendir hann Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra opið bréf. Bréfið birti Frosti á heimasíðu sinni.

„Nú er ljóst að vesturlönd eru að gera skelfileg mistök með þeirri stefnu að reyna að stýra útbreiðslu veirunnar,“ segir Frosti í upphafi bréfsins. „Þau freista þess að “fletja kúfinn” eða “teygja á faraldrinum” í þeirri von að hægt verði að hlífa öldruðum og viðkvæmum meðan hjarðónæmi byggist upp. Við erum að fylgja sömu stefnu.“

„Nú verða leiðtogar að grípa inn í“

Frosti segir að þessi leið muni líklega taka 50-80 vikur og að hún hafi lamandi áhrif á samfélagið og efnahagslífið. „Talið er að veiran muni breiðast út, þar til 60% landsmanna hafa tekið pestina (200.000). Reikna má með að minnst 5% (10.000) þeirra sem smitast veikist mjög illa og 1% (2.000) gætu dáið,“ segir hann.

„Fái veiran að ganga hraðar yfir, sligast heilbrigðiskerfið og þá munu enn fleiri deyja, kannski 4% (8.000). Í Bretlandi telja sérfræðingar að þessi leið, „að fletja kúfinn”, muni taka 18 mánuði og samt muni hundruð þúsunda deyja þar. Allan þann tíma þurfa viðkvæmir hópar að vera í sjálfskipaðri sóttkví til að forðast veiruna.“

Hann segir Ítalíu, Spán og fleiri þjóðir hafa misst tök á veirunni eftir að hafa fylgt þessari aðgerð með þeim afleiðingum að margir hafa látist. „Nú verða leiðtogar að grípa inn í áður en skaðinn verður óbætanlegur hér líka. Hér hefur smitrakningarteymið vart undan og fjöldi órakinna smita fer stöðugt vaxandi. Sóttvarnarlæknir talar í dag um að smitrakningu verði sjálfhætt, hafi teymið ekki undan. Hann virðist stýra undanhaldi fremur en sókn gegn veirunni.“

„Þau ákváðu að stöðva veiruna“

Frosti segir lausnina liggja fyrir. „Asíuríkin hafa sýnt að það er hægt að stöðva útbreiðslu veirunnar á innan við sjö vikum með snörpu átaki. Rjúfa þarf allar smitleiðir veirunar, skima og einangra. Veiran deyr út fái hún ekki að smita nýtt fólk. Að átaki loknu er vitað hverjir eru með smit og árvekni viðhöfð þar til búið er að þróa bóluefni eða lyf sem milda sjúkdóminn. Þessi aðferðafræði er vel þekkt og ekkert sem hindrar okkur í að ná árangri verði þessi stefna sett í gang.“

Þá segir hann að í löndum eins og Kína, Singapore, Taiwan og víðar hafi þessi leið skilað árangri og smitum snarfækkað. „Efnahagslífið í þessum löndum er að rétta úr kútnum. Þau ákváðu að stöðva veiruna.“

„Ég vil ekki gagnrýna sóttvarnarlækni“

Samkvæmt Frosta er þörf á stefnubreytingu en hann segir hana verða að koma frá stjórnmálamönnum og leiðtogum Íslands. Þá ávarpar hann Katrínu. „Ég veit að þú hefur alla burði til greina stöðuna og grípa inní. Ég vil ekki gagnrýna sóttvarnarlækni, heldur þá stefnu sem hann hefur fylgt eftir en hún virðist vera sú sama og hjá flestum evrópuríkjum.“

Frosti útskýrir þá stefnuna sem hann er að tala um. „Sóttvarnarlæknir hefur í viðtölum og síðast nú í dag, staðfest þá skoðun að það þurfi að fá smit út í samfélagið til að skapa ónæmi en verja þurfi viðkvæma og gæta þess að spítalar hafi undan. Ekki megi stöðva útbreiðsluna algerlega því þá gjósi veiran bara upp aftur síðar. Sóttvarnarlæknir telur þessa leið vera að skila góðum árangri, það rímar hins vegar ekki við þá stöðu að smitum fjölgar í samfélaginu og smitrakning hefur vart undan.“

Frosti segir að allir eigi vini og ættingja í áhættuhópi og að ekki sé of seint að bjarga þeim frá þessari vá. Hann segir lausnina ekki eiga að felast í því að kaupa fleiri öndunarvélar fyrir fárveika heldur í því að hindra það að landsmenn smitist.

„Læknar hafa tjáð mér að þeir séu mjög uggandi“

„Þú ert vonandi mjög hugsi,“ segir Frosti við Katrínu. „Enda hvílir ábyrgðin nú á þínum herðum og ríkisstjórnarinnar. Það er ekki hægt að vísa ábyrgð á sóttvarnarlækni, nú þegar öllum má vera ljóst að aðferð hans er röng og getur leitt til stórtjóns. Önnur margfalt skjótvirkari og öruggari leið er í boði.“

Frosti segir að það þurfi að taka ákvörðun strax. „Staðfest smit eru orðin 330 en samkvæmt skimun deCode er líklegt að í samfélaginu séu 0,7% (2.500) landsmanna smitaðir. Óafvitandi smita þeir nú börn, kennara, ástvini, gamalt fólk og veikt. Eftir viku verða smitaðir líklega orðnir 5.000 og hér eins og á Ítalíu munu 5-10% þeirra veikjast mjög illa. Það verða þá 250- 500 sem þurfa að leggjast inn, sumir á gjörgæslu. Er það bara ásættanlegt? Góður árangur? Hver dagur sem líður án stefnubreytingar fjölgar smitum um 5-20%.“

Þá segist Frosti hafa talað við lækna vegna veirunnar. „Læknar hafa tjáð mér að þeir séu mjög uggandi um sjúklinga sína verði ekki breytt um stefnu þegar í stað. Erlendir sérfræðingar, WHO, Bill Gates og fleiri leiðtogar hvetja stjórnvöld allra landa til að stöðva veiruna strax.“

„Stöðvum þessa veiru!“

Frosti botnar pistilinn með því að bjóða fram aðstoð sína. „Takist okkur að stöðva veiruna með samstilltu þjóðarátaki, yrði það ekki bara gott fyrir efnahagslífið og þjóðina, heldur einnig góð landkynning sem gæti laðað hingað ferðamenn í framtíðinni sem vilja heimsækja öruggt land,“ segir hann.

„Þetta tækifæri mun líða hjá, ef stjórnvöld bíða of lengi með ákvörðun Ég er reiðubúinn að aðstoða ef óskað er og tel víst að allir landsmenn séu tilbúnir að leggja sitt af mörkum í þjóðarátaki til að stöðva þessa veiru. Vonast til að heyra í þér sem allra fyrst. Stöðvum þessa veiru!“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Einingaverksmiðjan og Rafmennt unnu til verðlauna á Verk og vit 

Einingaverksmiðjan og Rafmennt unnu til verðlauna á Verk og vit 
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Harmleikurinn á Akureyri – Nágranni ber fólkinu vel söguna – „Það fer rosalega lítið fyrir þeim“

Harmleikurinn á Akureyri – Nágranni ber fólkinu vel söguna – „Það fer rosalega lítið fyrir þeim“