fbpx
Þriðjudagur 16.apríl 2024
Fréttir

Hnífsstunga á Kópaskeri – Þolandi á gjörgæslu og þrír handteknir

Erla Dóra Magnúsdóttir
Laugardaginn 29. febrúar 2020 11:03

Sérsveit lögreglu að störfum við þingsetningu. Myndin tengist fréttinni ekki.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Karlmaður á fimmtugsaldri er í haldi lögreglu, grunaður um að hafa stungið annan mann með hníf í heimahúsi á Kópaskeri í gærkvöldi.

Lögreglan á Norðurlandi eystra var kölluð út um níu leytið í gær vegna hnífsstungu. Árásin átti sér stað í heimahúsi og er meintur árásarmaður talinn hafa brotið sér leið inn í heimahús og ráðist þar að manni og valdið honum alvarlegum áverkum. Kona sem einnig var stödd í húsinu tilkynnti atvikið. Þegar lögreglu bar að garði var árásarmaðurinn á bak og burt.

Slæmt veður var á þessum tíma og vegir ófærir. Sérsveit ríkislögreglustjóra var kölluð á vettvang og flutt þangað með þyrlu og starfsmenn Vegagerðarinnar voru kallaðir út til að opna lögreglu leið eftir veginum. Sá slasaði var fluttur með þyrlu á sjúkrahúsið á Akureyri þar sem hann er nú á gjörgæslu, en líðan hans er sögð stöðug.

Meintur gerandi var handtekinn í nótt, en um er að ræða karlmann á fimmtugsaldri. Tvennt annað var handtekið vegna málsisn og flutt í fangageymslu.

Samkvæmt tilkynningu frá lögreglu er ljóst að málsaðilar voru ekki allsgáðir.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 3 dögum

Segir undirskriftalistann gegn Bjarna plebbalegan og óvirðingu við lýðræðið

Segir undirskriftalistann gegn Bjarna plebbalegan og óvirðingu við lýðræðið
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Kvöldfréttir Stöðvar 2 í opinni dagskrá á nýjan leik

Kvöldfréttir Stöðvar 2 í opinni dagskrá á nýjan leik