fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Fréttir

Veiran dreifir sér – Fyrsta tilfellið staðfest á suðurhluta Ítalíu

Ritstjórn DV
Þriðjudaginn 25. febrúar 2020 13:06

Íslendingar, sem staddir eru erlendis, vilja fylgjast vel með gangi mála.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fyrsta tilfelli kórónaveirunnar á suðurhluta Ítalíu hefur nú verið staðfest, en um er að ræða konu frá norðurhluta Ítalíu sem var í ferðalagi á Sikiley ásamt eiginmanni og vinum.

Í fréttum ítalskra fjölmiðla kemur fram að konan sé búsett í Bergamo í Lombardy-héraði, skammt norðaustur af Mílanó. Konan er sögð hafa verið með flensulík einkenni síðustu daga. Þegar hún leitaði til læknis fékkst grunur um kórónaveiruna staðfestur.

Konan dvaldi á Mercure-hótelinu og hafa gestir þess nú verið settir í sóttkví. Íbúar í Palermo, stærstu borg Sikileyjar, brugðust við þessum fréttum með því að hamstra mat úr verslunum. Óttast íbúar að gripið verði til lokana.

Í dag hafa ítölsk yfirvöld staðfest 54 ný tilfelli kórónaveirunnar og er fjöldi smitaðra nú kominn upp í 283. Sjö hafa látist og einn að minnsta kosti hefur náð sér að fullu. Þá staðfestu yfirvöld í Austurríki og Króatíu að veiran hefði greinst þar í morgun.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Einingaverksmiðjan og Rafmennt unnu til verðlauna á Verk og vit 

Einingaverksmiðjan og Rafmennt unnu til verðlauna á Verk og vit 
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Harmleikurinn á Akureyri – Nágranni ber fólkinu vel söguna – „Það fer rosalega lítið fyrir þeim“

Harmleikurinn á Akureyri – Nágranni ber fólkinu vel söguna – „Það fer rosalega lítið fyrir þeim“