Þórólfur Guðnason, sóttvarnalæknir, sagði í viðtali við Kastljós í kvöld að 80% þeirra sem smituðust af COVID-19 veirunni fengju aðeins væg einkenni. Um 5% veikjast alvarlega og 2-3% deyja.
Þórólfur segir líklegt að veiran berist hingað. Fátítt sé hins vegar að fólk smitist í flugi, loftþrýstingur og lofthreinsibúnaður hindri það.
Þórólfur sagði að erfitt væri að spá fyrir um framhaldið, hvað varðar útbreiðslu veirunnar. Fyrir skömmu hafi hann haldið að Evrópuþjóðum tækist að koma í veg fyrir útbreiðslu hennar en annað sé að koma á daginn.
„Okkar viðbragðsáætlanir miða að því að stoppa þennan faraldur sem fyrst og hefta útbreiðslu hans,“ sagði Þórólfur.