Úrslitin standa í viðureign MR og Kvennó í Gettu betur á föstudagskvöld þar sem MR vann með eins stigs mun. Raddir hafa verið háværar um að þjálfari MR hafi leiðrétt liðið með frammíkalli í síðustu í vísbendingaspurningunni og þannig tryggt liðinu sigur. Á vef RÚV er birt yfirlýsing frá Stýrihóp Gettu betur um málið og þar segir:
Stýrihópur Gettu betur hefur fundað um atvik sem upp kom í viðureign MR og Kvennó í Gettu betur á föstudagskvöld. Eftirfarandi er tilkynning frá stýrihópnum:
Stýrihópur Gettu betur ásamt spurningahöfundum og dómurum fór í dag yfir atvik sem upp kom í keppni á milli MR og Kvennó föstudaginn 14. febrúar. MR svaraði þriðja lið vísbendingaspurningu rétt en breytti svari og svo aftur eftir að hljóð virtist hafa borist úr sal.Reglur keppninnar eru skýrar og svindl er alls ekki liðið. Dómarar, stjórnendur og starfsfólk útsendingarinnar bæði í sal og myndstjórn fylgjast náið með áhorfendum í sal og verði vart við eitthvað óeðlilegt á meðan keppni stendur er spurning gerð ógild og ný spurning borin upp. Í keppninni í gær urðu stjórnendur ekki varir við slíkt og því standa úrslitin eins og reglur kveða á um. Til að koma í veg fyrir álitamál í framtíðinni brýnir RÚV fyrir áhorfendum að sýna keppendum virðingu, kalla ekki fram í eða trufla keppnina á annan hátt.
Smellið hér fyrir nánari umfjöllun um atvikið og myndskeið af því