fbpx
Laugardagur 20.apríl 2024
Fréttir

Ágústa í fullkominni óvissu: „Ég veit ekki hvenær ég fer í bað næst!“

Jón Þór Stefánsson
Föstudaginn 14. febrúar 2020 11:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Í dag birtist pistill eftir blaðamanninn og félagsfræðinginn Ágústu Örnu Sigurðardóttur á Vísi þar sem hún lýsir yfir alvarlegum áhyggjum sínum af ótímabundnu verkfalli félagsmanna Eflingar sem á að byrja 17. febrúar næstkomandi.

Ágústa, sem er lömuð frá brjósti, segir kröfur félagsmanna Eflingar mjög eðlilegar, en segir að ekki allir átti sig á hvaða áhrif verkfallið gæti haft.

„Komi til ótímabundins verkfalls mun það hafa gríðarleg áhrif á samfélagið. Helmingur leikskólabarna kemst ekki í leikskólann og í mörgum tilfellum þurfa amma og afi að létta undir með foreldrunum. Sorp verður ekki hirt og engri vetrarþjónustu verður sinnt, það er göngu- og hjólastígar verða ekki hálkuvarðir, enginn snjómokstur, ruslastampar verða ekki tæmdir og ekki verður mokað frá grenndarstöðvum.

Dragist verkfallið á langinn mun það fljótlega hafa áhrif á fatlað fólk og eldri fólk sem fær þjónustu frá heimaþjónustu Reykjavíkurborgar. Ég er í þeim hópi og í sannleika sagt hef ég talsverðar áhyggjur af þeirri stöðu sem er uppi.“

Samkvæmt Ágústu mun fatlað og eldra fólk fá algjöra grunnþjónustu meðan á verkfallinu stendur, en ekki fá þjónustu við mikilvæga þætti líkt og böðun og þrif. Hún segir að óvissan sé mikil þegar að fólk viti ekki hvenær það fari næst í bað.

„Velferðarsvið hefur fengið undanþágur fyrir starfsfólk Eflingar sem sér um umönnun fatlaðs fólks sem og eldra fólks. Um er að ræða algjöra grunnþjónustu til að tryggja öryggi og heilsu. Ekki eru veittar undanþágur fyrir þrifum á heimilum sem og aðstoð við böðun og ekki er veitt undanþága fyrir aðstoð við verslunarferðir svo eitthvað sé nefnt.

Eins og staðan er nú þegar nokkrir dagar eru í að ótímabundið verkfall hefjist þá veit ég að ég fæ aðstoð í sturtu á föstudegi. Hvað tekur við eftir það veit í rauninni enginn, nema þeir sem veita undanþágur. Þannig ég veit ekki hvenær ég fer í bað næst! Sem er verulega óþægilegt. Fer ég í bað næst þegar verður samið, hvenær sem það nú verður? Verða veittar undanþágur fyrir aðstoðí bað eða sturtu? Fer égí bað einu sinni í viku? Hvenær verður íbúðin mín þrifin? Spurningarnar eru margar.

Ég er svo heppin að ég er með gott stuðningsnet í kringum mig þannig ég get fengið vini og fjölskyldu til að skúra yfir gólfin í íbúðinni en því miður eru ekki allir svo heppnir. Hins vegar bið ég hvorki foreldra mína né aðra fjölskyldumeðlimi að aðstoða mig í sturtu á laugardagsmorgni ef ég er að fara í partý um kvöldið.“

Ágústa telur að samfélagið muni fara á hliðina ef verkfallið standi yfir í langan tíma. Hún bendir líka á að fæstir hópar samfélagsins myndu sætta sig við skerðingu á baðtíma og því sé mikilvægt fyrir þá sem sitja við samningaborðið að semja.

„Lífið hjá þeim sem þiggja heimaþjónustu frá Reykjavíkurborg mun fara úr skorðum aðeins nokkrum dögum eftir að verkfallið hefst. Fyrir þann hóp byrjar verkfallið að bíta af alvöru þegar fólk nær ekki að sinna sínu líkamlega hreinlæti almennilega. Ég er viss um að það færi um marga sem ekki tilheyra þessum hóp ef sagt væri við þá að þeir fengju ekki að fara í bað í nokkrar vikur. Eða fengju aðeins að fara í bað einu sinni í viku þar til að búið væri að skrifa undir nýjan kjarasamning.

Hreinlæti er ein af grunnþörfum hvers og eins og því finnst mér það óboðlegt að hugsanlega séu nokkrar vikur í að fatlað fólk sem og eldra fólk geti farið í bað með eðlilegum hætti. Ég er nokkuð viss um að aðrir hópar samfélagsins myndu seint láta bjóða sér slíkt.

Og við þá sem sitja við samningaborðið vil ég segja þetta: Eftir nokkra daga í ótímabundnu verkfalli verður samfélagið á hliðinni. Af þeirri einföldu ástæðu að þeir sem verða í verkfalli vinna gífurlega mikilvægt starf. Á allt of lágum launum og undir gríðarlegu álagi. Því er mikilvægt að deiluaðilar setjist niður og finni lausn á deilunni. Sem fyrst.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Stöð 2 lækkar verð
Fréttir
Í gær

Segist enga tengingu hafa við heimalandið en verður samt að sitja í fangelsi þar

Segist enga tengingu hafa við heimalandið en verður samt að sitja í fangelsi þar
Fréttir
Í gær

Kíghósti greinist hjá nokkrum ótengdum einstaklingum á höfuðborgarsvæðinu

Kíghósti greinist hjá nokkrum ótengdum einstaklingum á höfuðborgarsvæðinu