fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Fréttir

Gunnar Smári segir RÚV gerspillta stofnun -„Það er skömm að ekki sé búið að reka hann“

Ritstjórn DV
Fimmtudaginn 13. febrúar 2020 10:27

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Gunnar Smári Egilsson, fjölmiðlamaður og sósíalisti, segir það til skammar að Einar Þorsteinsson sjái um stjórnmálaumræðu á RÚV. Gunnar Smári hefur áður lýst því yfir að Einar sé vanhæfur þar sem hann hafi eitt sinn verið formaður Týs, félags ungra sjálfstæðismanna í Kópavogi.

Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, tókst á við Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, í Kastljósi í gær. Gunnar Smári segir hana hafa staðið sig vel þrátt fyrir aðstæður.

„Ég horfði á Kastljós og fannst Sólveig Anna ná að koma sínu fram þrátt fyrir gjamm í Sjálfstæðisflokksmönnunum tveimur, undraði mig svolítið á að hún hafi látið bjóða sér svona set-up hjá RÚV eftir að viðsemjandi hennar, Dagur B. Eggertsson, hafði fengið drottningarviðtal í Silfrinu. En líklega er það svo að konur fá ekki drottningarviðtöl hjá RÚV, alla vega ekki vinstri sinnaðar konur. Það er þekkt taktík hjá hægrinu að senda einhvern inn í umræðuna sem ekki á neitt sérstakt undir, einhvern sem getur kastað fram alls kyns rangindum og þvælu, vegna þess að hann þarf ekki að hitta viðmælandann eða standa við orð sín á nokkurn hátt í framhaldinu. Halldór Benjamín var í þessu hlutverki í kvöld. En Sólveig Anna stóð þetta af sér með glans,“ segir Gunnar Smári.

„Tík Sjálfstæðisflokksins“

Hann segir þó að frétt RÚV um umræddan þátt hafi verið hlutdræg: „Svo fór ég í bíó. Þegar ég kom heim sá ég þessa frétt eftir Einar Þorsteinsson, sérstakan fulltrúar Sjálfstæðisflokksins hjá RÚV, einn af æði mörgum. Hann skrifar þvæluna úr Halldóri Benjamín og setur hana inn sem fyrirsögn, eins og hún væri stórtíðindi. Einar ritar sextán línur eftir Halldóri og sex línur eftir Sólveigu Önnu; flokksfélagi hans fær 3/4 fréttarinnar en konan sem hann skilgreinir sem pólitískan andstæðing 1/4.“

Hann segir að RÚV sé einfaldlega spillt stofnun. „Auðvitað hefur allt hugsandi fólk séð í gegnum Einar Þorsteinsson fyrir löngu, það er skömm að ekki sé búið að reka hann frá RÚV. Það er ólíðandi að fréttafólk haldi trúnað við einhverja valdaklíku út í bæ og svíki þar með áhorfendur í umfjöllun sinni aftur og aftur. En RÚV er gerspillt stofnun þar sem Sjálfstæðisflokksfólk veður uppi. Einar er því látinn sjá um kosningasjónvarp, kappræður og viðtöl við forystufólk, þótt hann hafi margsýnt að þar er hann ekki í hlutverki fréttamanns heldur sem senditík Sjálfstæðisflokksins,“ segir Gunnar Smári.

Óboðlegt

Hann segir þetta óboðlegt. „En þó fólk sjái í gegnum svívirðu Sjálfstæðisflokksins, hvernig þessi klíka sveigir Ríkisútvarpið að eigin þörfum og hagsmunum, eins og flest allar stofnanir í landinu sem starfa eiga að almannaheill, þá er þetta náttúrlega ekki liðandi. Hversu lengi ætlar fólk að láta bjóða sér þetta? Nú þegar búið er að ráða enn einn Sjálfstæðisflokksmanninn sem útvarpsstjóra næstu fimm árin, er ljóst að þetta á eftir að versna enn. Á vakt síðasta útvarpsstjóra, sem bláeygt fólk reyndi að sannfæra sig um að væri óháður menningarsinnaður maður, var Kastljós gert að kláru Valhallarsjónvarpi, flokksbundið Sjálfstæðisfólk sett inn í Silfrið og þáttur búinn til fyrir Gísla Martein, svo hann gæti tekið viðtöl við ráðherra Sjálfstæðisflokksins og reynt að sannfæra almenning um að þetta væri skaplegt fólk,“ segir Gunnar Smári.

Hann telur að nýr útvarpsstjóri, Stefán Eiríksson, muni styrkja enn stöðu flokksins innan RÚV. „Næsti útvarpsstjóri Sjálfstæðisflokksins mun herða enn á þessum skrúfum. Sjálfstæðisflokkurinn er í vörn, fylgi hans hrörnar hratt eftir því sem augljósar verður að þessi fyrrum breiðfylkingin er í dag þröng hagsmunaklíka utan um allra stærstu eigendur allra stærstu fyrirtækjanna. Flokkurinn ætlar því að tryggja sér að öll umfjöllun RÚV fyrir næstu þing- og sveitarstjórnarkosningar verði samkvæmt forskrift flokksins. Hversu lengi ætlar fólk að láta bjóða sér þetta? spyr ég aftur.“

Sjá einnig: Halldór og Sólveig tókust á um kjaramálin

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Einingaverksmiðjan og Rafmennt unnu til verðlauna á Verk og vit 

Einingaverksmiðjan og Rafmennt unnu til verðlauna á Verk og vit 
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Harmleikurinn á Akureyri – Nágranni ber fólkinu vel söguna – „Það fer rosalega lítið fyrir þeim“

Harmleikurinn á Akureyri – Nágranni ber fólkinu vel söguna – „Það fer rosalega lítið fyrir þeim“