Æstur maður var handtekinn í miðborginni á tólfta tímanum en hann var í annarlegri vímu. Hann var vistaður í fangageymslu. Á tíunda tímanum var maður handtekinn í Bústaðahverfi, grunaður um að dvelja ólöglega hér á landi. Hann var vistaður í fangaklefa.
Tveir ökumenn voru handteknir í gærkvöldi og nótt, grunaðir um að vera undir áhrifum lyfja og fíkniefna.
Kvartað var undan samkvæmishávaða á tveimur stöðum í miðborginni og Hlíðahverfi í nótt og á einum stað í Hafnarfirði.
Einn var handtekinn í gærkvöldi, grunaður um eignaspjöll og var hann vistaður í fangageymslu.
Einn var handtekinn í vegna líkamsárásar á tíunda tímanum í gærkvöldi og var sá vistaður í fangageymslu.