Ásta Bjarnadóttir, framkvæmdastjóri mannauðsmála hjá Landspítalanum sagði í samtali við Vísi í dag að kostnaður við jólagjafir til starfsmanna spítalans þetta árið hafi verið töluvert meiri en venjulega eða alls 36 milljónir fyrir sjö þúsund króna gjafabréf í Skechers auk Omnom súkkulaðis til starfsmanna spítalans sem eru um sex þúsund talsins.
Mikil óánægja er meðal starfsmanna með gjöfina en ódýrustu skórnir í Sketchers kosta meira en sjö þúsund krónur og því hefur brandarinn gengið manna á milli að gjafabréfið dugi fyrir einum skó úr pari.
Fjölmargir starfsmenn hafa tekið sig saman og ætla að gefa gjafabréfin til góðgerðamála.
Sketchers búðin er í eigu fyrirtækisins S4S ehf. sem einnig á fleiri verslanir – Air, Ecco, Kaupfélagið, Steinar Waage og vefverslunina skór.is. Gjafabréfin sem starfsmenn Landspítalans fengu gilda þó aðeins í Sketchers.
Hér má sjá nokkur viðbrögð frá Twitter:
gleðilegt ár hjúkrunar + covid 🥰 hérna er blaut tuska í andlitið, jólakveðja LSH 🎅🏻🎅🏻🎅🏻 pic.twitter.com/AB3W8wdPsz
— mjög mikilvæg áminning, drekka vatn (@herreguddm) December 11, 2020
Uuuu skora á öll fyrirtæki að gefa starfsfólki LSH almennilega gjöf fyrst þau fengu einn skechers skó á mann. Þetta er skandall. https://t.co/eaIhpxcXOO
— Fríða (@Fravikid) December 11, 2020
Þetta er næstum jafn slæmt og þegar LSH gaf mannbrodda í jólagjöf. Stundum er betra að þegja en gefa. https://t.co/7oRh81gYW3
— Gudni Runar Gislason (@GudniGislason) December 12, 2020
7000 krónur í skóbúð? Er það ekki bara einn skór?
— Snæbjörn (@artybjorn) December 13, 2020
Vá þetta gjafabréf í Skechers er nú ekki alveg svona slæmt pic.twitter.com/0MUHGjpN0O
— Guðmundur Jörundsson (@gudmundur_jor) December 13, 2020