Hópsmit hefur komið upp á höfuðborgarsvæðinu. Mbl.is greindi fyrst frá þessu í kvöld. Þar er haft eftir varðstjóra í slökkviliði höfuðborgarsvæðisins mikið hafi verið að gera í dag við það að flytja fólk með staðfest smit í farsóttahús.
Tölur yfir hversu margir séu smitaðir hafa ekki verið gefnar upp.