fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Fréttir

„Hingað til hef ég setið á skoðunum mínum…“ skrifar fagstjóri Heilsuklasans

Máni Snær Þorláksson
Fimmtudaginn 10. desember 2020 19:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Hingað til hef ég setið á skoðunum mínum um sóttvarnaraðgerðir. Almennt séð tel ég rödd vísinda vera réttmætari en aðrar raddir, enda byggja fræðimenn rök sín svo gott sem eingöngu á staðreyndum.“

Svona hefst pistill sem Lars Óli Jessen, fagstjóri líkamsræktar Heilsuklasans, skrifar en pistillinn birtist á Vísi. „Verandi menntaður lýðheilsufræðingur og starfandi við rekstur á líkamsrækt finnst mér ég á einhvern hátt sitja báðum megin við borðið í þessari umræðu. Samkomutakmarkanir hef ég hingað til að mestu leyti stutt, einnig hvað varðar lokanir líkamsræktarstöðva. Alltaf erum við að læra meira og meira á þessa veiru og nú finnst mér eins og yfirvöld hræðist að skipta um hest í miðri á,“ segir Lars í pistlinum.

Lars fer þá yfir tölfræði smita hér á landi. „Nú hafa 5.524 smit verið staðfest hérlendis. Þar af eru 36 smit rakin beint til líkamsræktarstöðva og 74 afleidd smit, samtals 110 smit. Ekki nema 0,65% smita má því rekja beint til líkamsræktarstöðva og tæplega 2% ef afleidd smit eru talin með,“ segir hann.

„Vissulega væru tölurnar hærri ef ekki væri fyrir lokun líkamsræktarstöðva stóran hluta ársins, en í stóra samhenginu spyr maður sig hvort fórnarkostnaðurinn sé þess virði. Samkomutakmarkanir hafa fyrst og síðast þann tilgang að koma í veg fyrir veikindi fólks, fækka dauðsföllum og halda heilsufarslegum skaða þjóðarinnar í lágmarki – allt eru þetta form af því að standa vörð um heilsu almennings.“

Hver er fórnarkostnaðurinn?

Lars veltir því fyrir sér hvaða áhrif lokanir líkamsræktarstöðva hafa á heilsufar þjóðarinnar. „Heilsa hversu margra ætli hafi versnað sökum hreyfingarleysis? Hversu mikið hefur tíðni annarra veikinda aukist? Hversu mikið ætli algengi þunglyndis, kvíða, streitu og annarra andlegra kvilla hækki meðan aðgengi að besta lyfinu (hreyfingu) er skert? Hver er félagslegi skaðinn? Hversu margir í endurhæfingu hafa fengið bakslag? Hversu margir aldraðir hafa rýrnað í vöðvamassa, sem mun orsaka fleiri föll og önnur slys? Hversu mikið af ungu fólki hefur tileinkað sér lífsstíl hreyfingarleysis, sem mun hafa ótal neikvæðar heilsufarslegar afleiðingar síðar á lífsleiðinni? Svo mætti áfram telja,“ segir hann.

Lars segist ekki vita hvort opna hefði átt á starfsemi líkamsræktarstöðva ef öll sjónarmið eru tekin saman. „Ég veit ekki hvaða starfsemi á að vera fyrir ofan línuna og hvaða starfsemi fyrir neðan. Ég veit ekki hvaða sjónarmið á að hlusta á hverju sinni,“ segir hann.

Þó segist Lars vita eitt. „Líkamsræktarstöðvar væru vel til í að koma til móts við tilmæli sóttvarnaryfirvalda um háttalag starfsemi sinnar. Sótthreinsandi sprey út um allt, hóflegur fjöldi leyfilegur miðað við stærð rýmis, notkun einnota hanska eða hvað það væri sem myndi lágmarka smithættu,“ segir hann.

„Ég er ekki að skammast út í neinn“

Lars dásamar þá smitrakningarteymið hér á landi og segir það vera eitt það besta ef ekki allra besta áa heimsvísu. „Ég tel skjóta skökku við að miða reglur út frá alþjóðlegum tölum um algengi smitleiða, á sama tíma og við búum sjálf yfir nákvæmari tölum. Með afleiddum smitum má rekja innan við 2% smita til líkamsræktarstöðva. Tvö prósent,“ segir hann og spyr hvort það réttlæti heilsufarslegan fórnarkostnað sem lokun líkamsræktarstöðva hefur í för með sér.

„Að lokum vil ég taka skýrt fram að ég er ekki að skammast út í neinn. Það eru allir að gera sitt besta. Ég styð ekki hótanir um að kanna lögmæti aðgerða með kærum eða öðru slíku. Þetta eru einungis heilbrigðar vangaveltur frá starfsmanni á líkamsræktarstöð sem er orðinn einmana á skrifstofunni.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt