fbpx
Laugardagur 20.apríl 2024
Fréttir

Stella segir „skuggafaraldur“ geisa í skjóli faraldursins – „Ekkert þríeyki stigið fram til að bjarga þeim“

Máni Snær Þorláksson
Miðvikudaginn 25. nóvember 2020 11:30

Stella Samúelsdóttir, framkvæmdastýra UN Women á Íslandi.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Í dag, 25. nóvember, er alþjóðlegur baráttudagur gegn kynbundnu ofbeldi og skrifar Stella Samúelsdóttir, framkvæmdastýra UN Women á Íslandi, pistil á Vísi í tilefni þess.  Þar segir hún meðal annars frá því að engin Ljósaganga verði í ár sökum faraldursins . Hún hvetur fólk að kveikja á kertum fyrir þær 45.073 konur sem hafa verið myrtar af hendi náins fjölskyldumeðlims á heimsvísu á árinu 2020.

„Skuggafaraldur“

Stella segir að í raun hafi svokallaður „skuggafaraldur“ geisað um heim allan á þessu ári. „Samhliða alvarlegum efnahags- og félagslegum áhrifum heimsfaraldursins COVID-19 og aukinni félagslegri einangrun fólks hefur „skuggafaraldur“ kynbundins ofbeldis farið vaxandi um allan heim,“ segir hún.

„Það er staðreynd að í neyð líkt og nú ríkir á heimsvísu eru konur berskjaldaðri en nokkru sinni fyrir ofbeldi og því miður fer tilkynningum um heimilisofbeldi fjölgandi með hverjum deginum. Í sumum löndum hefur fjölgun hringinga í neyðarlínur fimmfaldast. Annars staðar hefur formlegum kvörtunum um heimilisofbeldi fækkað þar sem erfiðara reynist fyrir þolendur að sækja sér hjálpar eftir hefbundnum leiðum.“

„240 milljónir kvenna þurft að þola ofbeldi“

Stella segir margar konur og stúlkur vera einangraðar og bundnar heima með ofbeldismönnum sínum vegna samkomu- og útgöngubanna. „Nýjustu úttektir og rannsóknir benda til þess að þrír mánuðir af útgöngubanni þýði að 15 milljónir kvenna og stúlkna til viðbótar verði beittar kynbundnu ofbeldi. Á sama tíma er fjármagni oft beint frá nauðsynlegri stoðþjónustu á borð við kvennaathvörf og neyðarlínur,“ segir Stella og kemur því næst með tölfræði sem er vægast sagt hræðileg.

„Á heimsvísu hafa yfir 240 milljónir kvenna þurft að þola ofbeldi af hendi nákomnum aðila á síðustu tólf mánuðum. Þessi fjöldi mun að öllum líkindum aukast þar sem áhyggjur af heilsufari og fjárhagslegu öryggi skapar aukna streitu á heimilum sem þegar eru undir miklu álagi. Faraldurinn hefur einnig hræðileg áhrif á konur og stúlkur með fötlun sem geta átt í erfiðleikum með að tilkynna ofbeldi og misnotkun. Þá eru einnig aðrir jaðarsettir hópar í hættu svo sem konur í flóttamannabúðum.“

„Af hverju erum við ekki brjáluð?“

Þá veltir Stella því fyrir sér hvers vegna það sé ekkert þríeyki að bjarga þeim konum sem eru drepnar. „Á sama tíma og 70% þeirra sem eru í framlínunni um allan heim að bjarga mannslífum vegna COVID-19 eru konur, hefur ekkert þríeyki stigið fram til að bjarga þeim 137 konum sem drepnar eru á hverjum einasta degi allan ársins hring,“ segir hún.

„Af hverju erum við ekki brjáluð yfir því ofbeldi og mannréttindabrotum sem framin eru gegn konum og stúlkum á hverjum einasta degi? Af hverju höfum við ekki gert allt sem í okkar valdi stendur til að bregðast við ofbeldisheimsfaraldrinum sem geysað hefur frá örófi alda?“

„Ljós í myrkri fyrir konur um allan heim“

Að lokum segir Stella að UN Women sé til staðar fyrir konur í faraldrinum og mæti þörfum þeirra. „UN Women þrýstir á að konum sem beittar eru heimilisofbeldi sé veittur aðgangur að viðeigandi þjónustu; lögreglu, neyðarmóttöku og athvörfum. Í kvennaathvörfum UN Women hljóta konur heilbrigðisþjónustu, sálræna aðstoð, lagalega aðstoð og atvinnutækifæri auk þess að búa við öruggt húsaskjól,“ segir hún.

„Við hjá UN Women á Íslandi erum uggandi yfir bakslaginu sem COVID-19 hefur haft á jafnréttisbaráttuna. Bakslagið veldur því að aldrei hefur þörfin fyrir fjármagn til UN Women verið meiri. Með því að kaupa táknrænar gjafir UN Women getum við öll; einstaklingar og stjórnendur fyrirtækja, lyft grettistaki í að snúa þróuninni við. Saman getum við verið ljós í myrkri fyrir konur um allan heim.“

Hér getur þú styrkt baráttu UN Women.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Stöð 2 lækkar verð
Fréttir
Í gær

Segist enga tengingu hafa við heimalandið en verður samt að sitja í fangelsi þar

Segist enga tengingu hafa við heimalandið en verður samt að sitja í fangelsi þar
Fréttir
Í gær

Kíghósti greinist hjá nokkrum ótengdum einstaklingum á höfuðborgarsvæðinu

Kíghósti greinist hjá nokkrum ótengdum einstaklingum á höfuðborgarsvæðinu