Úlfar Lúðvíksson, nýskipaður lögreglustjóri Suðurnesja, tók við lyklavöldum hjá embættinu í morgun. Margrét Kristín Pálsdóttir, aðstoðarlögreglustjóri, afhenti Úlfari lyklanna. Samkvæmt færslu á Facebook-síðu embættisins byrjaði Úlfar daginn á því að fara í skoðunarferð um starfsstöðvar embættisins og kasta kveðjur á starfsmenn.
Úlfar Lúðvíksson tekur við af settum lögreglustjóra Grím Hergeirssyni sem tók við tímabundið eftir að Ólafur Helgi Kjartansson lét af störfum í ágúst eftir mikil innanhússátök sem enn hefur ekki verið undið ofan af að fullu.
Áður var Úlfar lögreglustjóri á Vesturlandi.