fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Fréttir

„Eru snjallsímar verkfæri skrattans, skaðvaldar alls og ógn við samfélagið?“

Máni Snær Þorláksson
Laugardaginn 14. nóvember 2020 12:15

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Á morgun, þann 15. nóvember, fer fram símalaus sunnudagur á vegum Barnaheilla. Af því tilefni skrifaði Erna Reynisdóttir, framkvæmdastjóri Barnaheilla, pistil sem birtist á Vísi í dag. „Það er ekkert launungamál að mörg erum við orðin háð símunum okkar, bæði til vinnu og til afþreyingar. Ég er engin undantekning á því. Mér hættir til að heyra ekki þegar við mig er talað og sjá ekki það sem í kringum mig er. Og á hverjum bitnar það? Jú, nánustu fjölskyldumeðlimum og hundinum sem berst um athygli við þetta litla tæki sem ég stari á tímunum saman,“ segir Erna í upphafi pistilsins.

„En þegar nánasta fjölskylda samanstendur af börnum? Jafnvel kornabörnum? Gæti verið að símarnir séu farnir að hafa áhrif á tengslamyndum foreldra og barna? Um það hafa verið gerðar rannsóknir og svarið er já. Því miður. Og það er grafalvarlegt mál,“ segir Erna og nefnir ástæðuna fyrir því að þetta er svo alvarlegt mál. „Eins og við öll vitum þá þurfa börn meira en mat, föt og nýja bleyju. Þau þurfa umhyggju, athygli, augnsamband og snertingu til að ná að þroskast tilfinningalega og félagslega,“ segir hún.

„Eru þá snjallsímar verkfæri skrattans, skaðvaldar alls og ógn við samfélagið? Nei, það vil ég ekki meina. Enda þótt símar og öppin í þeim geti verið tímaþjófar þá geta þeir líka verið tímasparandi og létt okkur lífið á margan hátt. Við þurfum bara að vera meðvituð um að við stjórnum þessum tækjum en þau ekki okkur. “

Erna segir að tilgangurinn með símalausa sunnudeginum sé að vekja fólk til umhugsunar um símanotkun og áhrif hennar á tengslamyndun í fjölskyldum. „Dagurinn getur líka verið ágætis byrjun á að breyta hegðun og taka frá tíma, hvort sem það er sunnudagur eða ekki, til að vera í raun til staðar fyrir sig og sína. Við hjá Barnaheillum höfum fengið töluverð viðbrögð við þessu framtaki okkar í gegnum tíðina og markverðust þóttu okkur viðbrögð barnanna,“ segir Erna.

„Þau tjáðu sig um að þau væru virkilega ánægð með daginn og sögðust vilja hafa hann oftar. Það segir okkur fullorðna fólkinu ýmislegt. Taktu þátt í símalausum sunnudegi. Upplifum ævintýri saman“

Hægt er að skrá sig í Símalausa sunnudaginn á www.simalaus.is.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Segist enga tengingu hafa við heimalandið en verður samt að sitja í fangelsi þar

Segist enga tengingu hafa við heimalandið en verður samt að sitja í fangelsi þar
Fréttir
Í gær

Kíghósti greinist hjá nokkrum ótengdum einstaklingum á höfuðborgarsvæðinu

Kíghósti greinist hjá nokkrum ótengdum einstaklingum á höfuðborgarsvæðinu