Svandís Svavarsdóttir, heilbrigðisráðherra segir að frá og með 18. nóvember næstkomandi muni starfsemi hárgreiðslustofa og íþróttastarf barna vera heimilað á ný, en þá munu nýjar samkomutakmarkanir vegna COVID-19 taka gildi. Vísir greinir frá þessu.
Þó mun áfram vera tíu manna samkomubann og tveggja metra regla í gildi. Þessar nýju reglur munu gilda til 2. desember.
Líkt og áður segir mega hárgreiðslustofur opna á ný, auk þess sem nudd- og snyrtistofur gera það líka, eða svokölluð einyrkjastarfsemi.