Gefin hefur verið út ákæra í einkar óhugnanlegu barnaníðsmáli á Suðurlandi. Er þar maður sagður hafa níðst á sömu stelpunni frá því hún var fjögurra ára gömul og þar til misnotkunin komst upp er hún var fimmtán ára.
Verknaðarlýsingar mannsins er finna má í ákærunni sem DV hefur undir höndum eru einkar ógeðfelldar.
Maðurinn er í ákærunni sagður hafa í „fjölda ótilgreindra skipta“ á nokkrum stöðum, beitt stelpuna ólögmætri nauðung vegna yfirburðastöðu sinnar gagnvart henni og þannig haft við hana önnur kynferðismök en samræði með því að stinga fingrum í leggöng hennar, sleikja kynfæri hennar, láta hana veita sér munnmök, kyssa hana tungukossi, láta hana snerta kynfæri sín og fróa sjálfum sér margsinnis uns hann hafði sáðlát.
Hann er þá sagður hafa sagt við stelpuna að hún þyrfti að komast í heimsókn þegar hann væri einn heima, „svo hann gæti riðið henni almennilega.“ Þá er hann sagður hafa sýnt stelpunni klámmyndir.
Héraðssaksóknari sækir málið og krefst þess í ákærunni að hann verði dæmdur til refsingar og greiðslu alls sakarkostnaðar. Þá er gerð krafa af hálfu stelpunnar að maðurinn greiði henni 2,5 milljónir í miskabætur auk kostnaðar vegna málsins.