
Annar eigandi verktakafyrirtækisins GT Verktakar hefur verið ákærður fyrir stórfelld skattsvik. Trausti Finnbogason stofnaði fyrirtækið ásamt Gísla G. Sveinbjörnssyni árið 2001. Er reksturinn stefndi í þrot sumarið 2004 var nafni fyrirtækisins breytt í G1000 ehf. G1000 var tekið til gjaldþrotaskipta árið 2017 og var kröfum lýst í búið upp á rúmlega 247 milljónir króna.
Þeir félagar stofnuðu síðan fyrirtækið GT Hreinsun sem hreppti tvö útboð í jarðvegsvinnu fyrir borgina, þrátt fyrir kennitöluflakk og gjaldþrotasögu eigendanna. Annars vegar hlaut fyrirtækið verk að Hlíðarenda upp á tæplega 180 milljónir króna og hins vegar verkefni við frjálsíþróttavöll ÍR, upp á rúmlega 90 milljónir.
Í ákærunni er Trausta gefið að sök að hafa staðið skil á efnislega röngum skattframtölum fyrir GT Verktaka frá 2015 til 2018. Nema meintar vanframtaldar tekjur fyrir þessi ár tæplega 62 milljónum króna og meintur vangreiddur tekjuskattur og útsvar tæplega 27 milljónum.
Þess er krafist að Trausti verði dæmdur til refsingar og greiðslu alls sakarkostnaðar.
Málið verður þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur þann 13. nóvember næstkomandi.