Sveitarfélögin og almannavarnir á höfuðborgarsvæðinu hafa ákveðið að hafa skipulagsdag í leik- og grunnskólum, tónlistarskólum og frístundastarfi mánudaginn 2. nóvember vegna hertra sóttvarnareglna stjórnvalda til varnar COVID-19.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá almannavarnanefnd höfuðborgarsvæðisins.
Þar segir ennfremur að mánudagurinn 2. nóvember verði notaður til að skipuleggja starfið með kennurum og öðru starfsfólki.
Leik- og grunnskólabörn eiga ekki að mæta í skólann mánudaginn 2. nóvember en nánari upplýsingar um skólastarfið verða sendar frá skólunum til foreldra og forráðamanna um áframhald skólastarfsins. Skóla- og frístundastarf mun hefjast aftur með breyttu sniði þriðjudaginn 3. nóvember.
Reglugerð vegna leik- og grunnskólastarfs er enn í vinnslu í heilbrigðisráðuneytinu og er ekki reiknað með að hún verði tilbúin fyrr en á morgun, sunnudag. Skólarnir hafa því enn ekki upplýsingar um til hvers er ætlast af þeim af ráðuneytinu.
English
Municipalities and Civil Protection and Emergency Management of the greater Reykjavík area has decided to have an organizational day í preschools, primary schools Music schools and after school centers on Monday, November 6 because of tightened mitigation rules set by the government to prevent COVID-19.
Monday November 2 will be used to plan school work with the teachers and other school staff.
Children in preschools and primary schools should therefore not come to school on Monday, November 2. Further information about this will be sent from the schools to parents and guardians. Schools will be opened again on Tuesday, November 3.