56 einstaklingar greindust með kórónuveiruna innanlands í gær. Nú eru 979 í einangrun en þeir voru 996 í gær. Á spítala eru 64 sjúklingar veikir af Covid-19 og af þeim eru 4 á gjörgæslu. 39 af þessum 56 einstaklingum voru í sóttkví, eða 70%.
Þetta kemur fram á covid.is.