75 smit greindust innanlands í gær, sem er ívið meira en daginn þar áður og í takt við það sem Íslendingar hafa þekkt síðustu tvær vikur eða svo. Ekkert lát virðist því vera á þriðju bylgju Covid-19 faraldursins hér á landi.
Hertar aðgerðir verða tilkynntar „öðru hvoru megin við hádegi,“ að sögn Katrínar Jakobsdóttur forsætisráðherra. Ríkisstjórnin fundar nú um minnisblað Þórólfs Guðnasonar sóttvarnalæknis og verður boðað til blaðamannafundar í kjölfar þess fundar.
65 greindust við sýnatöku vegna einkenna og 10 í sóttkvíar- og handahófsskimun. Fimm greindust á landamærunum, þar af er eitt smit staðfest virkt en beðið er eftir niðurstöðum úr mótefnamælingu í fjórum tilfellum. Af þeim 65 sem greindust voru 80% í sóttkví.
Nýgengi smita mældist í gær 211, en er í dag 213,3.
64 eru á spítala, samkvæmt tölum af Covid.is, og þar af fjórir á gjörgæslu sem er fjölgun frá því í gær. Þá er ljóst af tölum af Covid.is að fjöldi smita í hæstu aldurshópunum hefur aukist talsvert hratt síðustu vikuna, og má vafalaust rekja það til hópsmits á Landakoti sem dreifði sér á önnur hjúkrunarheimili.