fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Fréttir

Segist ekki hafa fengið vinnu vegna föður síns og flúið land – „Faðir minn hefur setið undir svívirðilegasta mannorðsmorði“

Ágúst Borgþór Sverrisson
Miðvikudaginn 14. október 2020 16:00

Kolfinna og Jón Baldvin. Samsett mynd DV.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Nýúkomin bók Ólínu Þorvarðardóttur, Spegill fyrir Skuggabaldur, hefur vakið mikla athygli en í bókinni fullyrðir Ólína að hérlendis tíðkist að leggja kerfisbundið stein í götu starfsframa fólks með óheppilegar skoðanir. Margir hafa undanfarið speglað sig í skrifum Ólínu. Í gærkvöld steig Kolfinna Baldvinsdóttir, dóttir Jóns Baldvins Hannibalssonar, fram og segist hafa liðið svo fyrir stjórnmálaferil föður síns að hún hafi orðið að flytja af landi brott til að fá vinnu.

Kolfinna skrifar:

„Ég hef alla tíð vitað þetta og m.a.s. fundið fyrir því á eigin skinni – þótt ég sé bara dóttir stjórnmálamanns, sem “flokknum” hefur staðið stuggur af. Bara að finna sumarvinnu sem unglingur, velti á velvild atvinnurekenda gagnvart Alþýðuflokknum – eða óvild. Atvinnutækifæri móður minnar veltu líka á því – eins og hún lýsir í nýútkominni bók sinni “Brosað gegnum tárin”.

Rétt eins og hún, var ég sjálf ráðin – og rekin – á þessum sömu forsendum: Ráðin hjá Stöð 2 til að sýna að sú stöð væri ekki of vilhöll “flokknum” en rekin líka til þess að þóknast “flokknum” þegar þar að kom. Ráðin hjá Rúv til að sýna að sú stöð gætti jafnræðis flokkslega, en rekin á sömu forsendum – eins og kom skýrlega fram í greinum Hannesar Hómsteins á þessum tíma: hann kvartaði undan því að “of margir kratar” væru á skjánum í “sjónvarpi allra landsmanna”.

Ég gerði mér enga grein fyrir því þá að líf mitt og atvinnutækifæri væru undirorpinn þessum forsendum – svo saklaus var ég þá að ég hélt ég væri einfaldlega hæf til starfsins, ung kona að hafa ofan í mig og á. Það var löngu síðar sem mér var einfaldlega sagt hvaða lögmál hefðu verið á ferðinni.“

Kolfinna veltir fyrir sér hvað samfélagið hafa orðið fyrir miklum skaða vegna þess hæfileikafólks sem hafi flúið land vegna atvinnuútilokunar:

„Af þeim þremur kostum sem Ólina nefnir, fyrir alla þá sem hafa lent í þessari skelfilegu hakkavél spillingar og flokkadrátta, valdi ég þann augljósa: að flytja af landi brott. Og ég velti fyrir mér nú hversu mikið íslenskt samfélag hefur liðið fyrir brottflutning allra þeirra sem hafa valið þennan sama kost. Það væri efni í rannsókn: hvaða áhrif hefur þetta “braindrain” haft á framför á þessu landi, – sem Skuggabaldrar “flokksins” eru ábyrgir fyrir. Ætti hann ekki að svara til saka?

Hversu oft hef ég ekki sent mína ferilskrá til Íslands, þegar ég sá auglýst störf sem pössuðu við mína starfsreynslu (ævinlega án svara)? Einu sinni gekk ein ráðningarstofan svo langt að mælast til þess að ég strokaði út þriggja ára starfsreynslu mína hjá Evrópusambandinu. Yfirýstir Evrópusambandssinnar eins og ég (sem hafði komið fram í mínum blaðaskrifum) kæmu ekki til greina. Þegar ég spurði hvað ég ætti þá að hafa verið að gera þessi þrjú ár, var svarið: Varstu ekki að eiga börn?“

Pistill Kolfinnu er langur og hann er hægt að lesa í heild með því að smella á tengilinn hér að neðan. En hún víkur að umfjöllun um meint kynferðisbrot föður síns undanfarin ár:

„Og talandi um þöggun. Nú hefur faðir minn setið undir svívirðilegasta mannorðsmorði fjölmiðla sem um getur að undanförnu. Og það liggur beinast við að spyrja: Kemur það eitthvað eignarhaldi fjölmiðla við? Svarið liggur í augum uppi.

Fyrir skömmu las ég leiðara í Fréttablaðinu “Mannorðsmorð” eftir Björku Eiðsdóttur. Í einhverju brjálæðislegu bjartsýniskasti hélt ég eitt sekúndubrot að hún myndi fjalla um mál föður míns. En nei, hún var að fjalla um mál Ólafs Williams Hand og segir um það eftirfarandi:

“Saklaus maður sem áður var í yfirmannsstöðu hjá stórfyrirtæki en var sagt upp starfi sínu um leið og hann var dæmdur í héraði og málið komst í hámæli í fjölmiðlum. Saklaus maður sem hefur fengið grimma útreið í athugasemdum á veraldarvefnum og þjóðin þekkir nú aðallega fyrir þetta sorglega mál. Það er auðvelt að ímynda sér hversu mikil áhrif það hefur á mannorð manneskju að vera sökuð um jafn svívirðilegan glæp og að leggja hendur á barnsmóður sína fyrir framan ungt barn þeirra. Dómstóll götunnar er fljótur að fella dóm þegar slíkar ásakanir eru uppi”.

Prófum að setja nafn föður míns inn í þessa formúlu. Þá myndi þessi texti hljóma eitthvað á þessa leið: Saklausum manni, þekktum stjórnmálamanni sem alla tíð hefur staðið styrr um, meinað að sinna kennslu við HÍ og almennt sínum skrifum (sem er hans lifibrauð), hefur fengið grimma útreið í athugasemdum á veraldarvefnum ÁN ÞESS AÐ HAFA NOKKURN TÍMANN VERIÐ DÆMDUR nema í þessum sömu fjölmiðlum. T.d. þeim sem Björk Eiðsdóttir vinnur hjá.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Móðirin í Kópavogi ákærð fyrir að reyna að drepa eldri soninn líka

Móðirin í Kópavogi ákærð fyrir að reyna að drepa eldri soninn líka
Fréttir
Í gær

Björn Leví: Þess vegna telja Píratar að ekki sé hægt að vinna með Sjálfstæðisflokknum

Björn Leví: Þess vegna telja Píratar að ekki sé hægt að vinna með Sjálfstæðisflokknum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

dk hugbúnaður flytur í nýjar höfuðstöðvar og kynnir nýtt vörumerki

dk hugbúnaður flytur í nýjar höfuðstöðvar og kynnir nýtt vörumerki
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ljósmyndaði nakinn mann í búningsklefa – Braut gróflega gegn kynferðislegri friðhelgi

Ljósmyndaði nakinn mann í búningsklefa – Braut gróflega gegn kynferðislegri friðhelgi