fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Fréttir

Óvissustigi lýst yfir á Íslandi vegna kórónaveiru

Ritstjórn DV
Mánudaginn 27. janúar 2020 13:20

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ríkislögreglustjóri hefur lýst yfir óvissustigi almannavarna í samráði við sóttvarnalækni og embætti landlæknis vegna kórónaveiru. Tekið er fram í tilkynningu vegna málsins að ekkert smit hafi verið staðfest á Íslandi.

Tilkynning almannavarna og landlæknis er svohljóðandi:

Í lok desember 2019 bárust fregnir af alvarlegum lungnasýkingum í Wuhan-borg í Kína. Í kjölfarið var staðfest að um áður óþekkt kórónaveiruafbrigði er að ræða, sem nú kallast 2019-nCoV. Staðfest er að veiran smitast á milli manna og að hún getur valdið alvarlegum veikindum. Faraldurinn breiðist hratt út en enn sem komið er hafa flest tilfellin greinst í Kína.

Í ljósi þessa, og á grundvelli áhættumats Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar og Sóttvarnarstofnunar ESB, hefur Ríkislögreglustjóri lýst yfir óvissustigi almannavarna í samráði við sóttvarnalækni og embætti landlæknis vegna kórónaveiru (2019-nCoV).

Óvissustigi er lýst þegar grunur vaknar um að yfirvofandi sé atburður sem hefur áhrif á lýðheilsu. Í kjölfarið er samstarf stofnana aukið, sem og upplýsingamiðlun. Vöktun er efld, áhættumat endurskoðað svo oft sem þurfa þykir og birgðastaða nauðsynlegra bjarga er könnuð og skráð. Farið er yfir viðbragðsáætlanir og fyrirliggjandi verkferla.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 17 klukkutímum

Hvað má barnið heita? – Herkúles en ekki Boom

Hvað má barnið heita? – Herkúles en ekki Boom
Fréttir
Fyrir 18 klukkutímum

Stefnir í miklar úrbætur á stöðu leigjenda á Íslandi – Þetta eru helstu skyldurnar sem munu falla á herðar leigusala

Stefnir í miklar úrbætur á stöðu leigjenda á Íslandi – Þetta eru helstu skyldurnar sem munu falla á herðar leigusala