Fertugur Kópavogsbúi hefur verið ákærður fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás sem á að hafa átt sér stað í ágústmánuði árið 2017. Aðalmeðferð málsins verður fyrir Héraðsdómi Reykjaness á næstu dögum.
DV hefur ákæru héraðssaksóknara undir höndum og er maðurinn þar sagður hafa slegið mann í andlitið með skóflu með þeim afleiðingum að sá sem fyrir árásinni varð nefbrotnaði. Er þess krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og greiðslu alls sakarkostnaðar.
Þolandi hinnar meintu árásar gerir einnig einkaréttarkröfu á hinn ákærða og krefst skaðabóta að upphæð 1.637.649 auk vaxta frá degi atburðarins. Einnig er gerð krafa um greiðslu þóknunar við réttargæslu í málinu.
Texti kærunnar er stuttur en samkvæmt heimildum DV er málið töluvert flóknara og átök mannanna munu eiga sér langan aðdraganda.