fbpx
Fimmtudagur 18.apríl 2024
Fréttir

Bótúlismi staðfestur á Íslandi – Aðeins greinst þrisvar á Íslandi frá 1949

Ritstjórn DV
Þriðjudaginn 21. janúar 2020 12:19

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þann 18. janúar síðastliðinn var bótúlismi staðfestur hjá fullorðnum einstaklingi hér á landi. Fyrstu einkenni byrjuðu þann 12. janúar og var eitrunin staðfest tæpri viku síðar. Eitrunarinnar hefur ekki orðið vart hjá öðrum einstaklingum.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Matvælastofnun en þar segir að uppruna eitrunarinnar sé ákaft leitað í samvinnu við heilbrigðiseftirlit sveitarfélaga, Matvælastofnun, sóttvarnalækni auk sýkla- og veirufræðideild Landspítala og rannsóknarstofu Matís.

„Bótulismi er eitrun af völdum Clostridium botulinum, sem er grómyndandi, loftfælin baktería. Bakterían getur myndað mjög öflugt eitur (botulinum toxin) og ef hún nær að vaxa í matvælum veldur hún alvarlegum veikindum með lömunum sem leitt geta til dauða. Tími frá neyslu mengaðra matvæla til veikinda er stuttur, frá nokkrum klukkustundum til þriggja sólarhringa og helstu einkenni eru hratt vaxandi lamanir. Í yfirstandandi rannsókn er ekkert sem bendir til að upprunann megi finna í matvælum sem eru í dreifingu.“

Þá segir að bótulismi sé mjög sjaldgæf eitrun sem hefur aðeins greinst hér á landi þrisvar sinnum, fyrst árið 1949 þegar fjórir menn veiktust eftir neyslu súrsaðs dilkakjöts, aftur 1981 þegar fjögurra manna fjölskylda veiktist og síðast árið 1983 þegar móðir og barn veiktust eftir að hafa borðað súrt slátur sem bakterían fannst í.

Loks segir að algengustu orsakir bótulisma eru heimalöguð matvæli eins og kjöt, fiskur, grænmeti og ávextir, sem eru oftast niðursoðin, grafin, súrsuð eða gerjuð og gjarnan í lofttæmdum umbúðum. Því sé mikilvægt að vanda vel til verka við slíka vinnslu, bæði í heimahúsum og í matvælafyrirtækjum.

Almennar ráðleggingar við meðhöndlun matvæla:

  • Forðist bólgnar/gallaðar niðursuðudósir/umbúðir
  • Skolið grænmeti og ávexti fyrir notkun
  • Haldið hráum og elduðum matvælum aðskildum
  • Hitið matvæli nægjanlega mikið og tryggið hraða kælingu ef þeirra er ekki neytt strax
  • Haldið kælivörum við 0–4 °C
  • Fylgið leiðbeiningum og geymsluþolsmerkingum á matvælum
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 9 klukkutímum

Hvað má barnið heita? – Herkúles en ekki Boom

Hvað má barnið heita? – Herkúles en ekki Boom
Fréttir
Fyrir 9 klukkutímum

Stefnir í miklar úrbætur á stöðu leigjenda á Íslandi – Þetta eru helstu skyldurnar sem munu falla á herðar leigusala

Stefnir í miklar úrbætur á stöðu leigjenda á Íslandi – Þetta eru helstu skyldurnar sem munu falla á herðar leigusala