Ísland tapaði gegn Ungverjalandi í síðasta leik sínum í undanriðli á EM í handbolta. Leikur íslenska liðsins hrundi í síðari hálfleik eftir að okkar menn höfðu verið yfir í hálfleik 12:9. Lokatölur urðu: 24:18. Ísland skoraði aðeins sex mörk í síðari hálfleik.
Síðari hálfleikurinn var langversti hálleikur okkar manna á mótinu og tapið kemur í veg fyrir að Ísland taki með sér tvö stig inn í milliriðil.
Ungverjar komust yfir í 3:0 í upphafi en Ísland sneri dæminu við og komst mest í fimm marka forystu. Staðan í hálfleik var síðan 12:9.
Í síðari hálfleik gekk hvorki né rak hjá okkar mönnum sem gekk afar illa að ráða við markvörslu og línuspil Ungverja auk þess sem sóknarleikurinn var afar dapur og boltanum var tapað marginnis.
Íslendingar voru vel studdir af dönskum áhorfendum (og að sjálfsögðu íslenskum) í leiknum sem urðu fyrir miklum vonbrigðum enda þýða úrslitin að Danir sitja eftir en Ísland og Ungverjaland fara áfram í milliriðil. Íslendingar taka ekkert stig með sér í milliriðil en Ungverjar tvö stig.
Í milliriðli bíða andstæðingarnir Noregur, Svíþjóð, Slóvenía og Portúgal.
Fyrir utan að stigaleysið minnkar möguleika Íslands í milliriðlinum afhjúpar leikurinn veikleika í liðinu sem er núna meira spurningamerki. Vonandi nær liðið sér á strik á ný.
Aron Pálmarsson og Guðjón Valur Sigurðsson skoruðu 4 mörk hvor í dag og Alexander Peterson 3.
Björgvin Páll varði 6 skot og Viktor Gísli Hallgrímsson 2. Markvarsla var góð í fyrri hálfleik en lítil í seinni hálfleik.