„Ísland niðurlægði Rússland og núna gæti pressan ekki verið meiri á Danmörku þegar ríkjandi heimsmeistarar mæta Ungverjalandi,“ segir TV2 í Danmörku. Í stuttri umsögn um leikinn segir miðillinn að Íslendingar hafi fylgt eftir óvæntum sigri sínum gegn Danmörku á laugardag og séu á fleygiferð inn í milliriðilinn. Enn fremur segir að íslenska liðið hafi byrjað leikinn á þrumum og eldingum og Rússar hafi ekki átt svör við hröðum Íslendingum.
Berlinske Tidende tekur í sama streng og segir að sigur Íslendinga á Rússum hafi sett aukna pressu á Dani sem verði að vinna Ungverja. Segir þar í fréttinni að það hafi verið ljóst frá byrjun að Rússar ættu ekki möguleika í Íslendinga. Segir að bláklæddir íslenskir stuðningsmenn hafi verið afar kátir yfir kraftmiklum leik sinna manna.
Þýski miðillinn Sport segir bókstaflega að Íslendingar hafi tekið Rússa í sundur í leiknum og liðið eigi feiknalega góða möguleika á að komast áfram í milliriðil.
Fréttavefur Evrópukeppninnar segir að Íslendingar hafi rofið álög með því að vinna tvo fyrstu leikina á mótinu. Segir í fréttinni að úrslitin hafi nánast verið ráðin snemma leiks er Ísland náði sjö marka forystu. Hafi Íslendingum nú í fyrsta skipti síðan á EM 2014 tekist að vinna fyrstu tvo leikina á stórmóti.
(Þegar þetta er ritað er hálfleikur í leik Dana og Ungverja og eru Ungverjar tveimur mörkum yfir. Ef Ungverjaland vinnur leikinn er Ísland komið áfram í milliriðil og Danir hafa þá lokið keppni.)
21:15: „Ungverjar líta frísklega út en Íslendingar hafa verið góðir,“ segir handboltasérfræðingurinn Bent Svele í viðtali við TV í Noregi eftir jafntefli Dana og Ungverja. Eftir þau úrslit er ljóst að Ísland er komið áfram í milliriðil en Danir verða að vinna Rússa með meira en eins marks mun og treysta á að Ísland vinni Ungverjaland á miðvikudag.