fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Fréttir

Áreitt í hálft ár af rúmenskum hælisleitanda: „Á ég bara að láta mig hafa þetta?“

Auður Ösp
Laugardaginn 11. janúar 2020 09:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Ég er búin að búa hérna í tvö ár og hef aldrei lent í neinu í líkingu við þetta. Það er augljóst að þessi maður er veikur á geði,“ segir Lola Leighton, bandarísk kona sem búsett er á Íslandi. Lola hefur undanfarið hálft ár ítrekað verið áreitt af rúmenskum hælisleitanda á þrítugsaldri sem heldur til í miðborg Reykjavíkur. Hún segist jafnframt vita af fjölmörgum öðrum konum sem hafa verið áreittar af manninum; hann sé með kynferðislega tilburði, óviðeigandi athugasemdir og í sumum tilfellum eltir hann konur heim. Ekkert er þó hægt að gera þar sem maðurinn hefur ekki beitt ofbeldi eða hótunum.

Sat og starði á starfsfólkið

Lola er sem fyrr segir bandarísk en hefur verið búsett á hér á landi í tvö ár ásamt íslenskum eiginmanni sínum. Í samtali við DV segist hún vita að maðurinn, hinn umræddi hælisleitandi, hafi dvalið á Íslandi í einhvern tíma og komið til landsins vegabréfslaus.

Hún segir að maðurinn hafi fyrst nálgast hana fyrir rúmlega hálfu ári, þegar hann innritaði sig inn á hótel í miðborg Reykjavíki þar sem hún starfar.

„Ég fékk þá að heyra langa sögu um að hann væri heimilislaus, héldi til í gistiskýlum og ætti engan pening,“ segir Lola, en hún segir manninn síðan hafa suðað í henni að fá lánaðan farsímann hennar svo hann gæti hringt í móður sína og fengið hana til að leggja inn á hann pening fyrir hótelherbergi.

„Hann var síðan stöðugt að ráfa úti um allt, var alltaf að panta sér te án þess að geta borgað fyrir það og var síðan ítrekað að spyrja kvenkyns starfsmenn á barnum hvort þær ættu kærasta. Ég gerði honum skýrt grein fyrir því að ég ætti mann og bað hann vinsamlegast um að hætta að áreita samstarfskonur mínar. Hann tók síðan upp á því að setjast beint á móti barnum og stara á okkur á meðan við vorum að vinna.“

Lola segir að henni, og samstarfskonum hennar, hafi liðið afar óþægilega í návist mannsins. Hún nefnir eitt skipti þar sem maðurinn mætti henni í stiganum á hótelinu, greip þéttingsfast um hana, kyssti hana á kinnina og sagði henni „að hún væri falleg“. „Ég fylgdi honum í anddyrið og gerði honum ljóst að hann væri ekki lengur velkominn inni á staðnum. Hann reyndi að þræta við mig, en hann talar bjagaða ensku þannig að það gekk ekki vel hjá honum.“

„You are so beautiful“

Lola segir að einungis nokkrum vikum síðar hafi maðurinn ítrekað orðið á vegi hennar. Hún var þá byrjuð í námi við Háskóla Íslands og rakst daglega á manninn á leið hennar í skólann. Hún segist þó ekki geta fullyrt að hann hafi setið um hana og bendir á að hann haldi einfaldlega til í miðborg Reykjavíkur og vegna smæðar borgarinnar sé ef til vill óhjákvæmilegt að hún rekist á hann. Hún segir manninn ýmist hafa mætt henni með óhugnanlegt glott á andlitinu, reynt að sníkja af henni sígarettu eða sagt við hana „You are so beautiful.“

Fljótlega hafi hún svo séð manninn í hvert skipti sem hún var á leið í vinnuna á Loft. Hann hafi ýmist verið hangandi fyrir utan skemmtistaði í  miðbænum eða nálægt 10-11 í Austurstræti.

„Í hvert sinn sem ég gekk fram hjá honum setti hann stút á varirnar og vinkaði í átt til mín.“

Lola segir manninn hafa mætt á hótelið þar sem hún starfar á gamlárskvöld, sest beint á móti barnum og starað á hana. Hún segist hafa viljað losna við hann, en ekki hafi verið hægt að láta henda honum út: mikil örtröð var á barnum, og maðurinn hafði ekki beinlínis gert neitt af sér. Maðurinn kom síðan aftur á hótelið næsta dag, illa lyktandi og sofnaði í sófa inni á staðnum.

Lola segist hafa sent samstarfsfólki sínu skilaboð eftir þetta og látið vita að maðurinn væri óvelkominn inni á staðnum. Maðurinn hafi ítrekað komið ítrekað inn á hótelið næstu daga, og ávallt verið hent út af starfsfólkinu.

 Viðbragðsleysi lögreglu

Lola segist endanlega hafa fengið nóg þann 4. janúar síðastliðinn. Þá hafi hún mætt manninum þegar hún var á leið í vinnuna, enn og aftur hafi hann starað á hana og glott og byrjað að vinka í átt til hennar.

Átta klukkutímum síðar þegar hún var á leið heim úr vinnu þurfti hún að koma við í verslun 10-11. Þar mætti hún manninum eina ferðina enn.

„Hann elti mig síðan út úr versluninni, þrýsti sér upp að mér og sagði: „Hey hey, how about I come home with you? Yeah? I’ll come home with you“.“

Lola segist hafa „tapað sér“ á þessum tímapunkti og byrjað að hrópa á manninn sem brást við með því að þykjast ekkert skilja. Hún segist hafa hringt í lögregluna þegar þarna var komið sögu og beðið um aðstoð því karlmaður væri að áreita hana. Því hafi ekki verið sinnt af hálfu lögreglunnar.

Á dögunum greip Lola til þess ráðs að setja inn fyrirspurn á Facebook, í lokuðum hóp fyrir útlendinga sem búsettir eru á Íslandi. Varpaði hún fram þeirri spurning hvað í ósköpunum hún gæti gert til að tryggja öryggi sitt: „Á ég bara að láta mig hafa þetta? Ekki bregðast við?.“

Í samtali við blaðamann DV segist  hún hafa fengið gífurleg viðbrögð eftir að hún birti frásögnina. Fjölmargir hafi ritað athugasemd undir færsluna eða sett sig í samband við hana og sagst kannast við manninn eða hafa séð hann á vappi í miðbænum. Þá hafa fjölmargar konur sett sig í samband við hana og greint frá því að þessi sami maður hafi áreitt þær. „Konur hafa sagt við mig: „Já, ég þekki hann“ og „Hann var að áreita mig fyrir utan Hlemm“ og svo framvegis. Ein segir að hann hafi elt hana heim.“

Þá segir Lola að ungur maður, námsmaður við HÍ, hafi einnig sett sig í samband við hana og sagst hafa þurft að þola áreiti frá manninum í rúmt ár. „Hann sagðist hafa talað við lögregluna, lögreglan sagði honum að hún vissi vel hver þessi maður væri. En það er ekkert hægt að gera,“ segir hún og kveðst í raun ráðalaus í málinu.

Erfitt að fá nálgunarbann samþykkt

Í lögum kemur fram að heimilt sé að leggja bann við því að maður komi á tiltekinn stað eða svæði, veiti eftirför, heimsæki eða setji sig með öðru móti í samband við annan mann, ef rökstudd ástæða er til að ætla að hann muni fremja afbrot eða raska á annan hátt friði þess manns sem í hlut á.

Það þarf þó mikið til að nálgunarbann fáist samþykkt hér á landi, þrátt fyrir að viðkomandi sitji undir hótunum, áreiti og röskun á friði og friðhelgi einkalífsins. Til að fá nálgunarbann samþykkt þarf að „sýna fram á með óyggjandi hætti að viðkomandi hafi framið brot sem flokkast undir röskun á friði.“

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Einingaverksmiðjan og Rafmennt unnu til verðlauna á Verk og vit 

Einingaverksmiðjan og Rafmennt unnu til verðlauna á Verk og vit 
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Harmleikurinn á Akureyri – Nágranni ber fólkinu vel söguna – „Það fer rosalega lítið fyrir þeim“

Harmleikurinn á Akureyri – Nágranni ber fólkinu vel söguna – „Það fer rosalega lítið fyrir þeim“