Strætó hefur gefið út nýjar leiðbeiningar varðandi smitvarnir í strætisvögnum. Jafnframt er beðist velvirðingar á misvísandi tilkynningum og misskilningi um þetta undanfarið. Almennt er ekki skylt að bera andlitsgrímu í strætó en mælt er með grímunotkun ef vagninn er þétt setinn og erfitt að halda tveggja metra fjarlægð. Einnig er mælt með grímunotkun fyrir hólk í ágættuhópum og grímuskylda er um borð í landsbyggðarvögnum Strætó.
Tilkynningin er orðrétt eftirfarandi:
- „Það er ekki grímuskylda í Strætó á höfuðborgarsvæðinu.
- Mælt er með því að viðskiptavinir geti sett upp grímu ef vagninn er þétt setinn og erfitt verður að halda 2 metra fjarlægð. Það er einnig mælt með grímunotkun fyrir fólk sem er í áhættuhópum.
- Það er grímuskylda um borð í landsbyggðarvögnum Strætó.
- Leiðbeiningar landlæknis um grímunotkun má nálgast hér: https://www.landlaeknir.is/servlet/file/store93/item42254/Lei%C3%B0beiningar.%20Hl%C3%ADf%C3%B0argrimur_30.07.2020.pdf
- Börn fædd árið 2005 og yngri eru með undanþágu frá grímunotkun.
- Viðskiptavinir Strætó eru ábyrgir fyrir því að útvega sér eigin andlitsgrímum.
- Minnum alla viðskiptavini á að passa upp á hreinlæti og nota ekki almenningssamgöngur ef grunur leikur á smiti.
Þetta var staðfest á upplýsingafundi almannavarna í dag.
Þessi tilmæli taka gildi frá og með deginum í dag, 1. ágúst.
Strætó biður almenning afsökunar á þeirri upplýsingaóreiðu sem myndaðist í kringum leiðbeiningar um grímunotkun.“