Nóg var að gera hjá lögreglunni í nótt. Í miðbænum fékk lögregla tilkynningu um líkamsárás þegar að viðskiptavinur á að hafa slegið afgreiðslumann í andlitið, sökum þess að hann var ósáttur með afgreiðsluna. Þá á hann einnig að hafa brotið borð af sömu ástæðu. Þegar að lögreglan kom á vettvang var maðurinn farinn af vettvangi, þó var vitað hvar hann er. Málið er því í rannsókn. Þetta kemur fram í dagbók lögreglu.
Einstaklingur var handtekinn á bar í miðborginni, sá hafði sýnt af sér ofbeldisfulla hegðun og v ar þí í tökum dyravarða þegar að lögregla kom á vettvang. Maðurinn var handtekinn og vistaður sökum ástands í fangageymslu lögreglu. Annar maður var vistaður í fangageymslu sökum þess að hann gat ekki gert grein fyrir sér þegar að lögregla kom að honum á austurstræti.
Í Mosfellsbæ voru tveir 16 ára unglingar sóttir af foreldrum sínum vegna ölvunar, ein þeir eiga að hafa verið í mjög slæmu ástandi.
Í Árbæ voru afskipti höfð að erlendum manni sem var að stunda veggjakrot án leyfis húsráðanda Bakpoki með spreybrúsum og verkfærum haldlögð. Manninum var tilkynnt að hann yrði kærður fyrir eignaspjöll.
Þá var einnig talsvert um umferðar- og fíkniefnabrot í nótt um alla borg.