fbpx
Miðvikudagur 24.apríl 2024
Fréttir

Andrés Indriðason er látinn

Jón Þór Stefánsson
Laugardaginn 11. júlí 2020 17:38

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Andrés Indriðason, rithöfundur og dagskrárgerðarmaður er látinn, 78 ára að aldri.

Andrés starfaði sem enskukennari og blaðamaður hjá Morgunblaðinu snemma ferilsins. Árið 1965 hóf Andrés vinnu við dagskrárgerð hjá RÚV, en þá var sjónvarpið nýkomið til Íslands, þar starfaði hann til 1985. Eftir það helgaði sér Andrés ritstörfum, en bækur hans, sem voru fyrst og fremst ætlaðar börnum og unglingum hafa verið gefnar út víða í Evrópu. Andrés var meðal annars upphafsmaður spurningakeppninnar Gettu Betur, sem hefur verið starfrækt til dagsins í dag við góðan orðstír.

Andrés lætur eftir sig eiginkonu, Valgerði Ingimarsdóttur. Dætur þeirra eru Ester og Ásta Barnabörnin eru þrjú.

Í fréttatilkynningu frá fjölskyldu Andrésar segir:

„Andrés Indriðason fæddist í Reykjavík 7. ágúst 1941. Hann starfaði sem blaðamaður, kennari, dagskrárgerðarmaður í útvarpi og sjónvarpi, við kvikmyndagerð og ritstörf. Hann hefur einnig þýtt fjölda bóka og þætti fyrir Sjónvarpið.

Andrés varð stúdent frá Menntaskólanum í Reykjavík 1963 og stundaði enskunám við Háskóla Íslands 1963-64. Hann nam kvikmyndagerð og dagskrárgerð fyrir sjónvarp í Árósum og Kaupmannahöfn 1965 og 1966. Hann vann sem dagskrárgerðarmaður hjá Sjónvarpinu frá stofnun þess árin 1966-85. Frá 1985 starfaði hann sem rithöfundur, og vann samhliða sjálfstætt að dagskrárgerð í Sjónvarpinu. Einnig vann hann að kvikmyndagerð sem leikstjóri og handritshöfundur. Hann var m.a. upptökustjóri og umsjónarmaður Gettu betur í 25 ár og hlaut fyrir það Edduverðlaunin.

Andrés skrifaði meira en 30 skáldsögur og tugi leikverka fyrir útvarp, sjónvarp og leiksvið t.d. Þjóðleikhúsið og Kópavogsleikhúsið. Fyrsta bók hans, Lyklabarn, hlaut fyrstu verðlaun í barnabókasamkeppni Máls og menningar árið 1979. Önnur bók hans Polli er ekkert blávatn hlaut verðlaun Fræðsluráðs Reykjavíkur sem besta frumsamda bókin árið 1981. Fyrir bókina Það var skræpa hlaut Andrés verðlaun Námsgagnastofnunar í samkeppni um létt lesefni fyrir börn árið 1984. Bækur hans hafa verið gefnar út í Þýskalandi, Sviss, Austurríki og Danmörku.

Útvarpsleikrit Andrésar hafa verið flutt á öllum Norðurlöndunum og Bretlandi og leiknar sjónvarpsmyndir hans fyrir börn hafa verið sýndar víða um heim. Einnig gerði hann leiknar kvikmyndir fyrir börn á vegum Námsgagnastofnunar, skrifaði handrit og leikstýrði, og eru myndirnar notaðar sem kennsluefni, hérlendis og erlendis. 

Andrés skapaði ástsælu brúðupersónurnar Glám og Skrám sem birtust í leikþáttum í Stundinni okkar. Einnig samdi hann sögu- og söngtextana á hljómplötunni Glámur og Skrámur í sjöunda himni 1979. 

Andrés skrifaði og leikstýrði fjölskyldumyndinni Veiðiferðin sem frumsýnd var árið 1980 og er enn í dag ein aðsóknarmesta kvikmynd sem gerð hefur verið hérlendis.“

DV sendir aðstandendum Andrésar Indriðasonar innilegar samúðarkveðjur.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Einingaverksmiðjan og Rafmennt unnu til verðlauna á Verk og vit 

Einingaverksmiðjan og Rafmennt unnu til verðlauna á Verk og vit 
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Harmleikurinn á Akureyri – Nágranni ber fólkinu vel söguna – „Það fer rosalega lítið fyrir þeim“

Harmleikurinn á Akureyri – Nágranni ber fólkinu vel söguna – „Það fer rosalega lítið fyrir þeim“