fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Fréttir

Nýr forsetaframbjóðandi á skilorði: Tók öryggisvörð Landsbankans hálstaki – Myndband

Jón Þór Stefánsson
Miðvikudaginn 13. maí 2020 21:58

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kristján Örn Elíasson forsetaframbjóðandi var í nóvember dæmdur í tveggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir líkamsárás. Í stjórnarskrá er ekki gerð krafa um hreint sakavottorð forsetaframbjóðenda.

Í kvöld greindi Fréttablaðið frá því  að tveir menn til viðbótar ætluðu bjóða sig fram til forseta fyrir komandi forsetakosningar. Þetta eru þeir Kristján Örn og Magnús Ing­berg Jóns­son.

Tekinn hálstaki og sparkað í hann

Kristján Örn komst í fréttirnar eftir að hann sneri niður öryggisvörð í Landsbankanum árið 2017. DV fjallaði ítarlega um málið á sínum tíma. Í dagbók lögreglu var málinu lýst svona:

„Kl. 14 var tilkynnt um líkamsárás á öryggisvörð í Landsbankanum í Austurstræti. Árásaraðili var farinn er lögregla kom á staðinn en vitað er hver hann er og árásin náðist á upptöku öryggismyndavéla. Mun öryggisvörðurinn hafa verið tekinn hálstaki og sparkað í hann. Málið verður rannsakað frekar.“

Kristján birti sjálfur Facebook-færslu í kjölfar atviksins þar sem hann sagði:

„Öryggisvörður Landsbankans/Securitas ræðst á hjartveikan áttræðan föður minn. Ég neyddist til að taka öryggisvörðinn hálstaki og endaði viðureignin þar sem hann var „lagður til“ á útidyratröppum Landsbankans. Yfirmenn bankans fela sig og augljóst að sækja verður þá á heimili þeirra. Ef ég þekki stjórnsýsluna rétt þá er Jón H.B. Snorrason og Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu að ræsa út Víkingasveitina í þessum skrifuðum orðum,“

„Ég tek hann hálstaki og dreg hann út úr bankanum“

Þá ræddi Kristján einnig við DV á sínum tíma:

„Pabbi fékk massíft hjartaáfall árið 2012. Karlinn telur að bankinn sé að drepa sig og ég er bara að verja hann. Þú ræðst ekki á gamlan mann fyrir að halda á síma.“

„Hann ræðst innan gæsalappa á pabba eða hrifsar af honum símann eða kippir af honum símann. Eins og þú sérð á myndbandinu þá geng ég í bankann og þú sérð að hann talar við mig og byrjar að ganga út. Svona óbeint að vísa manni út. Þegar við erum komnir að dyrunum þá rífur hann símann af pabba sem missir hann í gólfið frekar harkalega.“

„Þá rétti ég pabba hina græjuna, ég er farinn að vera með upptökutæki á mér, ég skrái allt því það er búið að ljúga svo miklu. En ég gríp símann og tek hann hálstaki og dreg hann út úr bankanum, það voru ekki nema tveir metrar. Ég held honum hálstaki þar í smá tíma og hann spriklar eitthvað. Ég sparkaði aldrei í hann, þetta er kannski óljóst að einhverju leyti, en hann reynir að keyra inn í mig og ég ætlaði að spyrna honum frá mér. Ég sleppi honum og fer til hliðar. Ég hélt að hann ætlaði í mig en þá ætlaði hann bara að hlaupa beint inn í bankann og þá fórum við bara.“

Myndband sem sínir aðdraganda ryskinganna má sjá hér:

Í frétt Fréttablaðsins um forsetaframboðin er einnig haft eftir Kristjáni að vissulega hafi það verið hann sem sneri öryggisvörðinn niður.

„Það er ég, það passar.“

„Það er mál sem varðar sam­skiptin við Lands­bankann og á­kveðna vald­níðslu sem kemur fram í fréttum um sýslu­manninn á Snæ­fells­nesi og sam­skiptin við Lands­bankann.“

Á skilorði

Kristján fékk tveggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir hálstakið og þurfti að greiða nokkurhundruð þúsund króna í miskabætur og málskostnað. Þá er hann á skilorði í eitt ár, en dómurinn féll í nóvember 2019.

Þegar umrætt atvik átti sér stað árið 2017 hafði Kristján verið í stríði við Landsbankann og samkvæmt frétt DV var aðdragandi málsins þessi:

Forsaga málsins er sú að Kristján Örn er stjórnarformaður Elliðafélagsins sem er félag utan um jörðina Elliða í Staðarsveit, Snæfellsnesi. Jörðin var áður í eigu afa Kristjáns og því er um ættaróðal fjölskyldunnar að ræða. Jörðin er geysistór, 2.144 hektarar, og segir Kristján að fjölskyldan hafi fengið tilboð í jörðina uppá 100 milljónir króna á árunum fyrir hrun. Hann hafi hafnað því enda hefði jörðin fyrst og fremst tilfinningalegt gildi en ekki peningalegt. Kristján tók tvö lán í nafni félagsins frá Landsbankanum fyrir hrun, samtals að upphæð 20 milljónir króna. Í kjölfar bankahrunsins réð hann ekki við afborganir lánanna og lenti í vanskilum.

Þá kærðu þrír stjórnendur Landsbankans Kristján fyrir hótanir og rof á friðhelgi einkalífsins. Þar á meðal var Steinþór Pálsson, fyrrverandi bankastjóri, sem taldi öryggi sínu ógnað og yfirgaf heimili sitt um tíma. Kristján hefur fúslega viðurkennt að hafa farið að heimili Steinþór til að ræða uppgjör skuldamáls sem tengist honum og fjölskyldu hans. Samkvæmt því sem Kristján segir við Fréttablaðið að málið nú til meðferðar hjá Landsrétti.

Þarf ekki óflekkað mannorð

Hvergi er tekið fram að forsetaframbjóðandi þurfi vera með óflekkað mannorð og hreint sakavottorð. Á Vísindavefnum er fjallað um ákvæði stjórnarskrárinnar:

Hvergi er það gert að skilyrði að forsetaefni skuli hafa “hreint sakavottorð”. Til samanburðar má skoða kjörgengisskilyrði til Alþingis, sem koma fram í 34. gr. stjórnarskrárinnar, en þar er “óflekkað mannorð” gert að skilyrði kjörgengis. Samkvæmt þessu verða menn að hafa óflekkað mannorð til að verða þingmenn en ekki til að verða forseti Íslands.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Spáir ekki dropa úr lofti í Reykjavík fyrr en í maí – Sumarið lítur sérstaklega vel út

Spáir ekki dropa úr lofti í Reykjavík fyrr en í maí – Sumarið lítur sérstaklega vel út
Fréttir
Í gær

Stofna góðgerðarfélag til minningar um Þuríði Örnu – Blásið til tónleikaveislu 1. maí

Stofna góðgerðarfélag til minningar um Þuríði Örnu – Blásið til tónleikaveislu 1. maí
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Íbúar brjálaðir út í Hafnarfjarðarbæ: „Þetta er til háborinnar skammar og engin lausn“

Íbúar brjálaðir út í Hafnarfjarðarbæ: „Þetta er til háborinnar skammar og engin lausn“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Réðst á dreng sem ætlaði að gera dyraat

Réðst á dreng sem ætlaði að gera dyraat