Í dag minntist Haukur Örn Birgisson, forseti Golfsambands Íslands, Kjartans Lárusar Pálssonar, eða KLP. Haukur segir Kjartan hafa verið frumkvöðul og mjög mikilvægan í Íslenskri golfmenningu. Þetta kemur fram í pistli sem birtist á Golf.is.
DV greindi frá andláti Kjartans í dag, en hann andaðist á Landspítalanum síðastliðinn föstudag, 3. apríl, áttræður að aldri. Hann var fararstjóri, blaðamaður og kylfingur.
„Þótt leiðir okkar Kjartans hafi ekki legið saman um árabil þá man ég vel eftir KLP, eins og hann var kallaður á skrifstofu golfsambandsins. Ég kynntist Kjartani þegar ég starfaði á skrifstofunni skömmu eftir aldamótin. Við urðum strax vinir og ég kunni að meta hversu bragðsterkur karakter hann var. Það fór ekki framhjá neinum þegar hann mætti á skrifstofuna. Hann hafi yfirleitt sterkar skoðanir á flestu sem sneri að rekstri golfsambandsins og var ófeiminn við að láta mann heyra það þegar honum fannst maður vera kominn utan vallarmarka. Alltaf komu ábendingar hans þó úr góðri átt. Hann bar hag íþróttarinnar fyrir brjósti.“
Þá fer Haukur yfir feril Kjartans, bæði í blaðamennsku og fararstjórn. Kjartan skrifaði fyrir DV, Tímann og Vísi. Sem fararstjóri ferðaðist hann meðal annars til Spánar, Írlands, Hollands og Tælands.
„Kjartan starfaði sem blaðamaður í um 25 ár, áður en verkefnin færðust yfir í fararstjórn. Hann var einn af frumkvöðlunum í golfferðaþjónustu á Íslandi og starfaði sem fararstjóri í rúmlega þrjá áratugi. Þeir kylfingar sem fóru með Kjartani til Spánar, Írlands Hollands og Taílands munu seint gleyma þeim ferðum. Kjartan var úrvals fararstjóri og mikill skemmtikraftur.
Kjartan sinnti ýmsum sjálfboðastörfum innan golfhreyfingarinnar um áratugaskeið. Hann starfaði um árabil fyrir Nesklúbbinn, var liðsstjóri unglingalandsliðs karla í golfi árið 1973 og á árunum 1979-1986 var hann einvaldur og liðstjóri karlalandsliðsins í golfi.“
Haukur minnst einnig golfafreka Kjartans, en hann var sem dæmi um langan tíma sá íslenski kylfingur sem oftast hafði farið holu í höggi, svo náði hann tvisvar svokölluðum Albatross.
„Kjartan var um tíma sá íslenski kylfingur sem oftast hafði farið holu í höggi. Hann átti Íslandsmetið en alls tókst honum grísa sig máttlausan sex sinnum. Þetta afrek hans var til þess að hann var sjálfskipaður formaður Einherjaklúbbsins, sem er sá klúbbur sem allir kylfingar vilja ganga í en enginn getur sótt um aðild að. Kjartan sinnti klúbbnum af einurð og átti gjarnan af þeim sökum erindi á skrifstofu golfsambandsins. Hann lét af formennsku í Einherjaklúbbnum eftir 34 ár, þegar Björgvin Þorsteinsson náði metinu af honum með sjöunda draumahöggi sínu. Kjartan náði einnig því tvívegis að leika par 5 holu á 2 höggum, eða Albatros, eins og það kallast á golfmáli.“
Haukur þakkar Kjartani fyrir starf sitt í þágu golfíþróttarinnar og segir að hann hafi svo sannarlega sett mark sitt á sögu hennar.
„Skemmilegur kylfingur er nú fallinn frá, sem hefur skilið eftir sig djúp fótspor í íslenskri golfsögu. Um leið og ég þakka Kjartani fyrir allt hans óeigingjarna starf í þágu golfhreyfingarinnar þá færi ég eiginkonu hans, börnum, barnabörnum og barnabarnabörnum innilegar samúðarkveðjur.“