fbpx
Miðvikudagur 24.apríl 2024
Fréttir

Fyrsta dauðsfallið í tengslum við COVID-19 á Íslandi

Hjálmar Friðriksson
Þriðjudaginn 17. mars 2020 13:18

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Einstaklingur sem var smitaður af COVID-19 lést á Íslandi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landlækni. Þar kemur fram að um er að ræða erlendan ferðmann sem lést á Norðurlandi. Þó maðurinn hafi reynst smitaður af COVID-19 þá er ekki hægt að fullyrða að veiran hafi dregið hann til dauða.

Tilkynningin í heild sinni

Erlendur ferðamaður sem leitaði til Heilbrigðisstofnunar Norðurlands á Húsavík vegna alvarlegra veikinda í gær reyndist smitaður af veirunni sem veldur COVID-19 sjúkdómnum. Maðurinn lést stuttu eftir komuna á stofnunina. Dánarorsök liggur ekki fyrir en sjúkdómseinkennin voru ekki dæmigerð fyrir COVID-19. Unnið er að því að skera úr um dánarorsökina.

Margþætt vinna tekur nú við vegna þessa máls, bæði varðandi andlát mannsinns og stuðning við hans nánustu. Þá þarf að styðja við og setja þá heilbrigðisstarfsmenn sem komu að meðferð mannsins í sóttkví, sótthreinsa heilsugæslustöðina ásamt því að tryggja nauðsynlega heilbrigðisþjónustu fyrir Húsvíkinga. Öll þessi verkefni eru unnin á vegum almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra, í náinni samvinnu við sóttvarnalækni, landlækni, Rauða krossinn og er unnið í samstarfi við aðgerðastjórn almannavarna á Norðurlandi eystra og heilbrigðisstofnun Norðurlands.

Starfsemi Heilbrigðisstofnunar Norðurlands á Húsavík verður í lágmarki, en eins og áður sagði er allt kapp lag á að tryggja að hægt verði að halda uppi mikilvægri þjónustu við íbúa á starfssvæði hennar og aðra sem kunna að þurfa á þjónustu hennar að halda. Tilkynningar er að vænta um hvernig þjónustu verður hagað.

Lokað er fyrir athugasemdir
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt