Tónskáldið Hildur Guðnadóttir er Óskarssigurvegari og í senn fyrsti Íslendingurinn til að hreppa þau verðlaun. Eins og margir sérfræðingar höfðu spáð hlaut hún gullstyttuna fyrir tónlist sína í kvikmyndinni Joker, en fyrr á árinu hafði hún fengið Golden Globe-verðlaunin og BAFTA-verðlaun.
Þegar stórleikkonan Sigourney Weaver tilkynnti nafnið fékk Hildur standandi lófaklapp frá ýmsum goðsögnum í kvikmyndabransanum. Sagði svo Hildur í þakkarræðu sinni að verðlaunin væru tileinkuð konum víða um heim og hvetur hún þær til að láta ljós sitt skína.
„Til stelpnanna, til kvennanna, til mæðranna, til dætranna, sem heyra í tónlistinni rísa upp að innan; látið í ykkur heyra. Við þurfum að heyra raddir ykkar,“ sagði Hildur og þakkaði einnig fjölskyldu sinni fyrir.
Fjórir aðrir voru tilnefndir til verðlaunanna en Hildur var eina konan sem var tilnefnd fyrir bestu tónlistina. John Williams var tilnefndur fyrir tónlistina í Star Wars: The Rise of Skywalker, Randy Newman fyrir Marriage Story, Thomas Newman fyrir 1917 og Alexandre Desplat fyrir Little Women. En eins og fyrr segir bar Hildur sigurorð af þeim öllum. Hildur er ein af sjö konum sem hafa verið tilnefndar í þessum flokki frá upphafi verðlaunanna.
Hildur hefur átt sérlega öflugt skeið síðustu misseri en hún hlaut einnig bæði Grammy-verðlaunin og Emmy-verðlaunin fyrir tónlist sína í sjónvarpsþáttunum Chernobyl, sem áhorfendur og gagnrýnendur héldu ekki vatni yfir.
Sjá einnig: Þetta eru sigurvegararnir á Óskarnum 2020