fbpx
Laugardagur 20.apríl 2024
Fréttir

Jóhann nennti ekki að horfa á sjónvarpið og fór í golf – Þar heyrði hann grunsamleg hróp og köll – Endaði á að bjarga mannslífi

Ritstjórn DV
Þriðjudaginn 21. janúar 2020 12:52

Jóhann með viðurkenninguna sem Austfirðingur ársins 2019. Mynd: GG

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Jóhann Sveinbjörnsson, 86 ára áhugakylfingar á Seyðisfirði, er Austfirðingur ársins að mati lesenda Austurfréttar. Í tilkynningu frá Austurfrétt, þar sem greint er frá valinu, segir að Jóhann hafi ákveðið að fara út á golfvöll að æfa sig að kvöldi 6. ágúst síðastliðinn í stað þess að sitja heima og horfa á sjónvarpið. Það átti eftir að reynast frábær ákvörðun enda bjargaði hann lífi ungrar konu.

Tilviljun að hann fór út á völl

„Það var hrein tilviljun sem réði því að ég var úti á velli. Ég hafði farið í Egilsstaði og yfir á Reyðarfjörð um daginn og settist við sjónvarpið til að horfa á fréttir. Ég var búinn að koma mér vel fyrir í sófanum hér heima þegar, upp úr klukkan átta um kvöldið, byrjar þáttur sem mér líkaði ekki. Ég hugsaði með mér: „Djöfull er þetta leiðinlegt, nú fer ég inn á golfvöll.“

Jóhann var mættur út á golfvöll um hálf níu leytið og var efst á golfsvæðinu, við rætur Bjólfs, þegar hann heyrði eitthvað sem líktist fuglum kallast á.

„Ég heyrði hljóðið nokkrum sinnum svo ég stoppaði og hóaði upp í fjallið. Ég fékk svar, en fuglarnir svara manni stundum, þannig að ég hélt áfram að slá. Ég heyrði hljóðið hins vegar við og við og hugsaði með mér að þetta gæti verið mannsrödd.“

„Mér fannst ekki vera hægt að ganga hjá því ef einhver væri í vandræðum. Ég var með síma en vildi ekki hringja í Neyðarlínuna því ég hélt þetta væru fuglar. Ég keyrði því út í bæ, heim til lögreglumannsins og fékk hann með mér inn eftir. Við gengum upp eftir þar sem ég hafði heyrt í konunni og hóuðum upp í fjallið. Við fengum svar til baka. Við vorum búnir að kalla svolitla stund og hlusta á hana þegar okkur kom saman um að þetta væri mannsrödd. Þá tók hann upp símann og hringdi í Neyðarlínuna.“

Óvíst hvort hún hefði lifað af nóttina

Í ljós kom að ung kona frá Sviss hafði hrapað í hlíðinni fyrir ofan golfvöllinn á Seyðisfirði. Hafði hún legið þarna allan daginn og kallað til fólks á vellinum án þess að nokkuð heyrðist í henni. Björgunarsveitarmenn frá Ísólfi á Seyðisfirði komu á staðinn innan skamms og með aðstoð dróna var hægt að staðsetja hana. Í ljós kom að konan var mun nær golfvellinum en hann hélt í fyrstu.

Konan var orðin köld þegar björgunarsveitarmenn komust til hennar, en hún lá á syllu i vatni. Aðgerðin gekk hratt og vel fyrir sig – kannski sem betur fer enda óvíst hvort konan hefði lifað af nóttina.

„Þetta var óskaplega erfitt, mikið myrkur og bratt. Björgunarsveitin kom fljótt og það var fólkið í henni sem á heiðurinn af því að hafa bjargað stelpunni,“ segir hann.

Fékk kort frá henni síðasta haust

Í tilkynningu Austurfréttar segir að konan hafi verið flutt með sjúkraflugi til Reykjavíkur þar sem gert var að sárum hennar. Ekki mátti miklu muna að hún hefði lamast. Jóhann fékk svo kort frá svissnesku konunni síðasta haust þar sem hún þakkar honum. „Þá var hún komin til Sviss. Hún sagðist vera að byrja að læra að ganga aftur.“

Jóhann, sem er orðinn 86 ára eins og að framan greinir, hefur ekki stundað golfíþróttina lengi. „Ég byrjaði bara í golfi í maí. Ég leit aldrei á golf sem íþrótt, ég sagði að ég gæti allt eins farið í saumaklúbb. Góður maður, Ómar Bogason, kom til mín síðasta vor og fékk mig til að ganga í golfklúbbinn. Ég fór að reyna að slá kúluna en hitti hana aldrei. Ég notaði kraftana eins og ég var vanur úr áhaldafimleikunum og lyftingunum sem ég stundaði hér áður fyrr.“

Jóhann stundar golfið af miklum áhuga og fer gjarnan tvisvar á dag, fyrir og eftir hádegi, á golfvöllinn. Það gerði hann til að mynda í gær. „Maður hefur ekkert annað að gera,“ segir hann.

Í tilkynningu Austurfréttar kemur fram að Jóhann hafi fengið flest atkvæði í kjörinu á Austurfrétt en valið var milli 14 aðila. Að launum fær hann viðurkenningarskjal, gjafabréf í mat og gistingu á Gistihúsinu á Egilsstöðum og ársáskrift að Austurglugganum.

„Ég er ekki grobbinn en ég er ánægður með að hafa átt þátt í að stelpan bjargaðist. Það var gott að fara ekki heim án þess að sinna henni. Það voru hins vegar björgunarmennirnir sem höfðu fyrir því að ná henni. Það er gaman að fá þessa viðurkenningu en ég held ég ofmetnist ekki. Ég er hins vegar mjög þakklátur þessu fólki sem sýndi mér þessa virðingu.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Ástþór hvetur fólk til að passa sig á þessu: Ævintýrið getur fljótt breyst í martröð

Ástþór hvetur fólk til að passa sig á þessu: Ævintýrið getur fljótt breyst í martröð
Fréttir
Í gær

Lögregla fann 29 dauða nautgripi á bæ á Norðurlandi Vestra

Lögregla fann 29 dauða nautgripi á bæ á Norðurlandi Vestra
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Guðlaugur Þór leiðréttir útbreiddan misskilning: „Þrátt fyr­ir þessa staðreynd flýg­ur sag­an áfram“

Guðlaugur Þór leiðréttir útbreiddan misskilning: „Þrátt fyr­ir þessa staðreynd flýg­ur sag­an áfram“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Bubbi mærir Katrínu í Mogganum: „Við skulum tala íslensku“

Bubbi mærir Katrínu í Mogganum: „Við skulum tala íslensku“