fbpx
Miðvikudagur 24.apríl 2024
Fréttir

Völvuspá DV – Hrottaleg morð framin á Íslandi: „Málið mun skekja samfélagið og fylla alla landsmenn óhug”

Ritstjórn DV
Miðvikudaginn 1. janúar 2020 11:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Eftirfarandi er stutt brot úr Völvuspá DV fyrir árið 2020. Greinar upp úr spánni má lesa með því að smella hér.

Morð á miðju ári

Völvan þagnar. Augun stækka og hún sýpur hveljur. Henni reynist erfitt að koma upp orði, í fyrsta sinn á fundi okkar.

„Á miðju ári verður framið morð sem er einstakt á Íslandi. Verður sami einstaklingur handtekinn fyrir morð á tveimur einstaklingum. Verða morðin einstaklega hrottaleg og vel undirbúin. Málið mun skekja samfélagið og fylla alla landsmenn óhug. Í framhaldi af því verður löggæslan tekin til gagngerrar endurskoðunar, fjölgað í lögreglunni bæði á höfuðborgarsvæðinu og úti á landi. Þetta verður nefnilega þannig glæpur að það hefði verið hægt að koma í veg fyrir hann. Netið og samfélagsmiðlar spila þar rullu og loksins verður tekið á netglæpum innan lögreglunnar, því miður aðeins of seint,“ segir hún.

„Fíkniefnamál verða fyrirferðarmikil á árinu mörg dauðsföll verða sem rekja má til neyslu og ofneyslu alls konar fíkniefna. Þar er þróunin hröð og að minnsta kosti tvö ný stórhættuleg efni verða mjög afdrifarík á þessu ári. Eldsvoðar verða tíðir og mikið eignatjón í mörgum tilvikum. Manntjón í því sambandi sé ég aðeins eitt, sem betur fer. Það tjón ber ekki að með saknæmum hætti.“

Völvuspána í heild sinni má lesa í Völvublaði DV.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Einingaverksmiðjan og Rafmennt unnu til verðlauna á Verk og vit 

Einingaverksmiðjan og Rafmennt unnu til verðlauna á Verk og vit 
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Harmleikurinn á Akureyri – Nágranni ber fólkinu vel söguna – „Það fer rosalega lítið fyrir þeim“

Harmleikurinn á Akureyri – Nágranni ber fólkinu vel söguna – „Það fer rosalega lítið fyrir þeim“